<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-11T15:18:55" skst="SÁA" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 15:21:11 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T15:18:55">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Það er nú þannig með þennan stóra málaflokk og
    heilbrigðismálin almennt að þau eru svo víðfeðm og heyra undir ýmsa
    ráðherra. Þeim málaflokkum hefur kannski ekki endilega verið skipt með
    rökrænum hætti í tíð þessarar ríkisstjórnar að minnsta kosti. Hæstv.
    heilbrigðisráðherra fer með nokkra málaflokka í samstarfi við aðra
    ráðherra en ég hefði kannski mestan áhuga á að heyra hæstv.
    heilbrigðisráðherra lýsa því í örfáum orðum hver hennar sýn er á stærstu
    áskoranir í heilbrigðismálum Íslendinga, ekki bara á þessu kjörtímabili
    eða varðandi þessi þingmál sem eru núna til umfjöllunar eða verða núna í
    vetur, heldur svona bara í stórum dráttum.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég fyrir mitt leyti hef t.d. miklar áhyggjur af öllum þeim fjölda
    sem er að þiggja bætur úr almannatryggingakerfinu og þó að það heyri ekki
    undir hæstv. heilbrigðisráðherra, þ.e. kerfið sjálft, þá hlýtur þó að
    heyra undir hæstv. ráðherra rótin að þeim vanda sem eru úrskurðir lækna um
    örorku og það sem heitir núna endurhæfing og er einhvers konar stig,
    einhver gátt inn í örorkuna. Og ég verð að segja að mér óar við þessum
    tölum sem ég sé hér, að fjöldi þeirra sem þiggja örorkulífeyri er kominn í
    hátt í 19.000 og endurhæfingarlífeyririnn yfir 7.000, samtals ríflega
    26.000 manns sem eru komnir á þetta kerfi. Þetta er auðvitað fyrir utan þá
    sem eru á atvinnuleysisbótum og eldri borgara sem þiggja ellilífeyrinn
    sinn frá ríkinu. Þetta finnst mér a.m.k. vera stærsta áskorunin í
    heilbrigðismálum. <ns:bjalla/> Það væri fróðlegt að vita hvort hæstv.
    ráðherra geti verið sammála mér um það eða hvaða sýn hún hefur í stórum
    dráttum á þessi mál.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>