<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-11T15:23:41" skst="SÁA" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 15:25:21 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T15:23:41">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Það taka auðvitað allir undir orð hæstv.
    heilbrigðisráðherra um lýðheilsu. Það er alveg örugglega rétt að það er
    auðvitað besta meðalið við þeim sjúkdómum sem herja á landann. Það eru
    líka, eins og hæstv. heilbrigðisráðherra nefnir, komin lyf við þessum
    langvinnu sjúkdómum og læknavísindunum hefur farið svo fram að menn lifa
    sem betur fer með alls konar sjúkdóma lengi, en það kostar, það er ekki
    ókeypis. Ég þekki það svo sem ekki en ég get ímyndað mér að læknismeðferð
    með lyfjum sé kannski aðallæknismeðferðin, hefur manni virst. Nú veit ég
    að hæstv. heilbrigðisráðherra hyggst leggja aftur fram frumvarp um
    viðbrögð við skorti á lyfjum í vetur. Ég vildi spyrja hverju liði
    heildarendurskoðun <ns:bjalla/> lyfjalaga með tilliti til þess sem hefur
    kannski verið mestur ágreiningur um við lyfjaframleiðendur og lyfjasala,
    þ.e. það að Ísland sé að dragast aftur úr þegar kemur að aðgangi að bestu
    lyfjum sem fáanleg eru <ns:bjalla/> vegna innkaupastefnu stjórnvalda. Er í
    gangi vinna í ráðuneytinu að þessu leyti?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>