<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="heilbrrh." frhr="0" id="r2026-09-11T15:25:26" skst="AMöll" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 15:26:40 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T15:25:26">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Aftur þakka ég hv. þingmanni góðar athugasemdir. Það
    er alveg rétt að meðferðir með lyfjum geta verið svokallaðar annars stigs
    forvarnir. Þegar við erum greind með blóðþrýstingsvandamál eða annað þá er
    afar mikilvægt að meðferð sé viðeigandi. Varðandi lyfjamálin þá eru þau
    mjög flókin. Ég hyggst t.d. ræða við Dani um hvort við gætum fengið að
    vera hluti af þeirra markaði. Síðan er annað í bígerð sem er að hætta að
    miða við lágmarksverð á Norðurlöndunum, sem var gert í Covid og gerir það
    að verkum að færri vilja koma inn á íslenskan markað. Nú hefur verið tekin
    ákvörðun og ég hef tilkynnt að þetta verður ekki lengur gert svona.
    Útfærslan er í gangi. Það er verðendurskoðun á tveggja ára fresti. Við
    erum að flýta þeirri næstu þannig að það er svo sannarlega vinna í gangi,
    bæði til að fá aðgengi að almennum lyfjum og svo eru líka þessi
    leyfisskyldu lyf sem við höfum oft rætt hérna.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>