<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-11T15:26:48" skst="KÁB" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 15:28:35 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T15:26:48">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Mig langar að byrja á að þakka hæstv.
    heilbrigðisráðherra Ölmu Möller fyrir hennar yfirferð. Heilbrigðismál eru
    í skýrum forgangi í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2027. Þrátt fyrir þrönga
    stöðu ríkisfjármála er verið að verja og styrkja þessa mikilvægu
    grunnþjónustu. Þörfin er líka mikil. Mikil innviðaskuld hefur safnast upp
    í heilbrigðiskerfinu á mörgum undanförnum árum. Þar eru biðlistar eftir
    margs konar þjónustu. Skortur hefur verið á hjúkrunarrýmum og öðrum
    úrræðum ásamt mönnunarvanda og miklu álagi á starfsfólk. Slíkan vanda
    leysum við ekki á einu ári. Ákveðnar aðgerðir ríkisstjórnarinnar eru sem
    betur fer nú þegar farnar að skila árangri. Á síðustu 12 mánuðum hafa 244
    ný hjúkrunarrými verið tekin í notkun sem hefur létt mikið af álaginu á
    Landspítalanum. Enn fleiri hjúkrunarrými eru í undirbúningi og ný
    bráðamatsdeild við bráðamóttökuna í Fossvogi verður vonandi tekin í gagnið
    í haust.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Mig langar að horfa fram á veginn og spyrja hæstv.
    heilbrigðisráðherra í hvað þessir 16,2 milljarðar eiga að fara á næsta
    ári. Hvar telur ráðherra að almenningur muni helst finna mun á
    heilbrigðisþjónustunni á árinu 2027 vegna aukinna fjárveitinga til
    málaflokksins samkvæmt fjárlagafrumvarpi? Og í öðru lagi: Bið eftir
    þjónustu ýmiss konar er enn eitt stærsta úrlausnarmálið. Hvaða aðgerðir
    telur ráðherra að muni helst skila sér í minni bið og betra aðgengi að
    heilbrigðisþjónustu?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>