<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="heilbrrh." frhr="0" id="r2026-09-11T15:28:44" skst="AMöll" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 15:30:54 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T15:28:44">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Kolbrúnu Áslaugar Baldursdóttur
    skemmtilega spurningu um hvernig ég sé fyrir mér að heilbrigðisþjónustan
    verði á næsta ári eftir þær aðgerðir sem við erum að ráðast í. Það tekur
    auðvitað alltaf tíma að koma fjármunum í skynsamlega nýtingu en það er
    ljóst að það verða færri að bíða eftir hjúkrunarheimili og fleiri af okkar
    elstu og helstu borgurum verða komnir í skjól. Það eykur þeirra lífsgæði
    og það sparar fjármuni því að plássin á Landspítalanum eru auðvitað þau
    dýrustu og vonandi gerir það Landspítala betur kleift að sinna sínum
    sérhæfðu verkefnum. Síðan vona ég auðvitað að fólk sem sækir
    bráðamóttökuna finni fljótt mun og vonandi starfsfólkið þar einnig eftir
    að bráðamatsdeildin kemst í gagnið í næsta mánuði og líka vegna þess að
    færri eru að bíða inni á spítalanum. Síðan erum við að styrkja mjög
    endurhæfingu þannig að ég vona að fólk finni fyrir því að það er minni bið
    eftir endurhæfingu og það sama á auðvitað við um fíknimeðferð.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég er búin að nefna heilmargt er snýr að biðlistum barna varðandi
    greiningar og meðferð ADHD, talmein og einhverfu. Síðan verður líka
    auðvitað búið að styrkja þjónustu við börn sem hafa orðið fyrir eða orðið
    vitni að ofbeldi. Varðandi aðgengi annars staðar þá erum við í
    risaverkefni til að bæta aðgengi að heilsugæslu og við erum auðvitað líka
    að huga að aðgengi að þjónustu á landsbyggðinni. Það er bið eftir
    skurðaðgerðum og þar hef ég mestar áhyggjur af augasteinsaðgerðum. Þar
    erum við vissulega að bæta í svokallaðan DRG-pott, við erum með samning
    við sjálfstætt starfandi og erum að fara yfir hvernig við getum stytt bið
    eftir skurðaðgerðum. Það er auðvitað forgangsröðun á hverjum tíma
    <ns:bjalla/> eftir því hvar biðin er mest.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>