<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-11T15:31:04" skst="KÁB" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 15:32:08 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T15:31:04">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra fyrir greinargóð
    svör. Það er alveg skýrt að því minni sem biðlistinn er, því betra aðgengi
    er að þjónustunni og betri þjónusta án efa. En mig langar að víkja nokkrum
    orðum að hagræðingunni. Heilbrigðis- og öldrunarstofnanir eru meðal
    þeirrar grunnþjónustu sem sérstaklega er leitast við að hlífa í
    fjárlagafrumvarpinu. Heilbrigðiskerfinu er engu að síður ætlað að leggja
    sitt af mörkum í hagræðingu, m.a. með hagkvæmum innkaupum og betri nýtingu
    fjármuna. Þá er kannski spurningin þessi: Hvernig sér hæstv. ráðherra
    fyrir sér að sú hagræðing náist án þess að hún komi niður á mönnun eða
    þjónustu við sjúklinga? Þarna er fín lína og þetta er viðkvæmur
    málaflokkur. Ég spyr um hagræðinguna og hvort hún geti mögulega komið
    niður á mönnun og þjónustu við sjúklinga.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>