<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="heilbrrh." frhr="0" id="r2026-09-11T15:32:18" skst="AMöll" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 15:33:29 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T15:32:18">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni þessa góðu spurningu. Eins og
    ég nefndi í mínum inngangi er það auðvitað eilífðarverkefni að huga að
    hagræðingu og umbótum. Í heilbrigðiskerfinu tölum við um stöðugar umbætur,
    að vera sífellt að rýna það sem verið er að gera og reyna að fá sem mest
    virði út úr þjónustunni, ná sem bestum árangri með sem minnstum
    tilkostnaði. Þarna er mjög margt undir. Það er auðvitað oft sýnd veiði en
    ekki gefin en það eru þó dæmi um að hægt sé að t.d. draga úr eftirliti án
    þess að það komi niður á árangri. Þetta var gert eftir hrun þegar okkur
    vantaði gríðarlega krabbameinslækna, þá var dregið úr eftirliti með
    brjóstakrabbameini og konunum leið, ef eitthvað er, betur við að þurfa
    ekki að fara eins oft í eftirlit. En þarna liggur ábyrgðin svolítið hjá
    stjórnendum, þeir þurfa að rýna sína þjónustu og sjá hvað er hægt að gera
    án þess að það bitni á öryggi eða gæðum.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>