<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-11T15:33:44" skst="IIsak" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 15:35:11 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T15:33:44">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir hennar ræðu. Ég held
    að við höfum flestöll skilning á því að það er áskorun að reka
    heilbrigðiskerfið á Íslandi. Það eru víða áskoranir í hinum ýmsu
    málaflokkum. Mig langar svolítið samt sem áður að ræða hagræðinguna sem er
    í rauninni staðreynd þegar kemur að stöðugildum eins og hæstv. ráðherra
    fór yfir. Það er verið að boða 1% fækkun stöðugilda hjá ríkinu og sértæk
    aðhaldskrafa er á spítalastiginu. Þar af eru tæplega 528 milljarðar kr.
    vegna fækkunar stöðugilda og tæpar 534 millj. kr. vegna innkaupaaðhalds.
    Þótt það komi fram að það eigi að hlífa framlínustörfum, sem mér finnst
    mjög mikilvægt og ég tek undir og styð, er mönnunarvandi sérstaklega
    alvarlegur eins og við sjáum á Sjúkrahúsinu á Akureyri sem á að gegna
    hlutverki varasjúkrahúss landsins.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Mig langar af þessu tilefni að spyrja hæstv. ráðherra: Hvernig á
    að framkvæma 1% fækkun stöðugilda og milljarða aðhaldskröfu á spítalana án
    þess að það komi niður á framlínustörfum og mönnunaröryggi, sérstaklega á
    landsbyggðinni eins og á Sjúkrahúsinu á Akureyri? Hversu mörg stöðugildi
    verða lögð niður og hvaða störf eru það þá sem verða lögð niður?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>