<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="heilbrrh." frhr="0" id="r2026-09-11T15:35:18" skst="AMöll" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 15:37:05 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T15:35:18">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Hér spyr hv. þm. Ingibjörg Isaksen um hvernig eigi að
    ná markmiði um að fækka stöðugildum hjá ríkinu um 1% og það er alveg ljóst
    að það verður áskorun. Það er auðvitað sérstaklega lagt upp með að hlífa
    framlínustörfum. Það eru mörg önnur störf eins og millistjórnendur og
    slíkt og það er auðvitað ekki heilbrigðisráðherra sem ákveður hvernig
    þetta verður útfært á hverri stofnun heldur stjórnendur þar. Ég veit t.d.
    að Landspítali hefur þegar byrjað að rýna öll sín störf þannig að auðvitað
    eru alltaf tækifæri til þess og ég sé fyrir mér að þetta verði fyrst og
    fremst í gegnum náttúruleg starfslok.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Það er alveg rétt að það hefur verið mikill mönnunarvandi en samt
    hefur verið bætt ágætlega í t.d. læknamönnun á Landspítala síðustu árin og
    þar hefur læknum fjölgað. Auðvitað var það nauðsynlegt vegna styttingar
    vinnuviku en þessi fækkun fer auðvitað bara fram með nákvæmri rýni þar sem
    öll störf verða rýnd og það er alltaf gott að hafa virðisjöfnuna í huga
    þegar það er gert.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>