<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-11T15:37:14" skst="IIsak" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 15:38:25 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T15:37:14">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir. Ástæðan fyrir því að
    ég spyr að þessu er sú að þetta er algjörlega óútfært og er hugsað sem
    hagræðingaraðgerð í tengslum við að skila hallalausum fjárlögum. En mig
    langar aðeins að spyrja út í annað: Það er niðurskurður og hliðrun á
    fjármagni vegna nýs Landspítala. Við sjáum að fjárfestingarheimildir vegna
    nýs Landspítala eru skornar niður um tæpa 9 milljarða kr. í frumvarpinu
    miðað við áætlanir. Stjórnvöld vísa til þess að spítalinn eigi um 20
    milljarða kr. í uppsafnaðar ónýttar heimildir og lækkunin hafi ekki áhrif
    á framkvæmdahraða.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Mig langar til að spyrja hvort þessi lækkun á
    fjárfestingarframlaginu sé raunveruleg bókhaldsleg tilfærsla eða hvort það
    sé hreinlega verið að hægja á framkvæmdunum markvisst og hliðra
    kostnaðinum til síðari ára til að láta halla ársins 2022 í rauninni nást
    fram. Ástæðan fyrir því að ég spyr að þessu er sú að þessi tilfærsla er,
    miðað við það sem ég sá, töluvert hærri en hefur verið undanfarin
    ár.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>