<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-11T15:39:41" skst="DME" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 15:41:32 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T15:39:41">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir yfirferðina. Það
    er af mörgu að taka í þessum mikilvæga málaflokki sem er mikil samstaða um
    að við eyðum stórum hluta ríkisútgjalda í. Það er þó ekki sama hvernig við
    förum með þessa fjármuni skattgreiðenda. Reyndar mætti færa rök fyrir því
    að vegna mikilvægis og umfangs ættu eftirlitið og eftirfylgnin að vera
    þeim mun meiri. Við getum ekki litið fram hjá framúrkeyrslu
    sjúkratrygginga á síðasta ári. Eitt af því sem ég hef tekið upp hér á
    Alþingi er niðurgreiddur sjúkrakostnaður erlendis og spyr því: Er í öllum
    tilvikum um að ræða heilbrigðisþjónustu sem er ekki hægt að veita hér á
    landi? Í því sambandi nefni ég t.d. að hundruð milljóna hafa farið frá
    íslenskum skattgreiðendum í niðurgreiðslur vegna efnaskiptaaðgerða
    erlendis á undanförnum árum sem eru þó framkvæmdar hér á landi.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég get ekki heldur látið hjá líða að nefna hjúkrunarheimilin. Nóg
    hefur verið um samfélagsmiðla-„stunt“ frá stjórnarliðum í þeim efnum en
    þegar betur er að gáð fara ekki saman hljóð og mynd. Væri til of mikils
    mælst þegar ný stjórn hreykir sér af 244 nýjum rýmum að ekki væri látið
    eins og vinna þessarar stjórnar hefði skilað þessum rýmum, eða áætlaði
    þessi stjórn, samþykkti, fjármagnaði og byggði þessi nýju rými og allt á
    18 mánuðum? En stjórnarliðar ganga lengra og tala um 1.400 ný rými, eitt
    þúsund og fjögur hundruð. Þegar ég svo skoða kostnaðarmat í
    framkvæmdaáætlun um uppbygginguna og ber saman við fjármálaáætlun og síðan
    fjárlög stemmir þetta bara alls ekki. Ég spyr hæstv. ráðherra: Hvernig á
    að fjármagna frekari uppbyggingu eða er það bara seinni tíma
    vandamál?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>