<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="heilbrrh." frhr="0" id="r2026-09-11T15:41:42" skst="AMöll" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 15:43:54 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T15:41:42">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttur fyrir
    spurningarnar. Ef við byrjum á sjúkratryggingum þá er það rétt að
    lækniskostnaður erlendis er að hluta til ófyrirsjáanlegur. Þarna er þrennt
    undir: Í fyrsta lagi meðferð sem er ekki hægt að veita hérlendis, og þar
    get ég nefnt sem dæmi mjög flóknar aðgerðir eins og líffæraflutninga, sem
    við gerum ekki hér. Það er ekkert vitað fyrir fram hvernig sá liður þróast
    hverju sinni og þar er það siglinganefnd sem ákveður.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Í öðru lagi eru það mál sem varða læknisfræðilega óásættanlegan
    biðtíma á Íslandi. Það er kannski helst það sem þingmaðurinn er að tala um
    og þar hefur mjög dregið úr. En það er rétt að þarna hafa
    efnaskiptaaðgerðir verið helstu aðgerðirnar, mjög fáar liðskiptaaðgerðir
    núorðið. Þær eru kannski færri en tíu og geta verið alls konar ástæður
    fyrir því. En ástæða þess, það er nú fyrir mína tíð sem var samið við
    aðila erlendis um efnaskiptaaðgerðir, er að á þeim tíma var það ódýrara en
    að gera þær hér heima. Ég hef hins vegar lýst miklum vilja til að taka
    þessar aðgerðir heim. Sjúkratryggingar: Ég veit ekki betur en að það sé
    byrjað að skoða undirbúning að því. Það þarf auðvitað að gera klínískar
    leiðbeiningar og annað slíkt og svo myndi auðvitað þurfa að auglýsa eða
    bjóða út eftir atvikum.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Í þriðja lagi er svo læknismeðferð samkvæmt landamæratilskipun.
    Það þýðir að fólk á rétt á að fá meðferð erlendis, jafnvel þó að það sé
    hægt að veita hana hér, og greiða þá bara á milli. Ég svara kannski með
    hjúkrunarrýmin í seinna svari.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>