<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-11T15:44:03" skst="DME" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 15:45:18 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T15:44:03">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Auðvitað
    undanskiljum við meðferðir sem ekki er hægt að veita hérlendis. Það er
    ekki það sem við erum að beina sjónum að. Biðtími á Íslandi réttlætir ekki
    að aðgerðir séu framkvæmdar erlendis sem er hægt að gera hér. Það á bara
    að bjóða þetta allt út, svo einfalt er það. Ég fæ vonandi að heyra frá
    hæstv. ráðherra í síðari umferð aðeins um hjúkrunarrýmin.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Hér í síðari umferð langar mig hins vegar að nefna fjármuni til
    heilbrigðisþjónustu við konur með endómetríósu, sjúkdóm sem getur valdið
    sárum verkjum og ófrjósemi og hrjáir allt að 10% kvenna. Ég vil gjarnan fá
    að vita hvort halda eigi áfram fjárveitingum til endóaðgerða innan
    lýðheilsutengdra aðgerða. Þekkir hæstv. ráðherra það eftir að kvótinn var
    minnkaður til aðgerða einkaaðila undir hennar stjórn? Hafa biðlistar
    lengst til muna? Hvað er að frétta af miðlæga biðlistanum sem hæstv.
    ráðherra hefur gjarnan talað fyrir? Þekkir hæstv. ráðherra hversu margar
    konur sem eru á biðlistum hjá einkaaðilum vegna endómetríósu þiggja
    tilvísun til Landspítala? Hvert er viðhorf hæstv. ráðherra til þess að
    sjúklingar hafi val þegar kemur að heilbrigðisþjónustu? Er það hreinlega
    mikilvægt?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>