<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="heilbrrh." frhr="0" id="r2026-09-11T15:45:25" skst="AMöll" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 15:46:42 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T15:45:25">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég ætla að byrja á endó. Þar er tekin ákvörðun um
    hvernig fjármunir eru nýttir í biðlistaaðgerðir, eða það sem hv. þingmaður
    nefnir lýðheilsutengdar aðgerðir, eftir því hvernig biðin er. Þarna eru
    nokkrir aðgerðaflokkar undir. Það er náttúrlega bara verið að gera miðlæga
    biðlistann. Það er líka búið að styrkja mjög endóteymið á Landspítala því
    þar er auðvitað þessi þverfaglega meðferð. Það getur þurft aðkomu annarra
    skurðlækna. Ég veit að konur eru orðnar sáttar við meðferð í endóteyminu.
    Það var ekki alltaf þannig.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Fyrri spurningin sem hv. þingmaður nefndi um hjúkrunarheimilin:
    Það er auðvitað búið að fjármagna þau heimili sem er áætlað að verði opnuð
    á næsta ári og í fjármálaáætlun er búið að fjármagna þau öll. Það sem
    hraðaði uppbyggingu var m.a. <ns:bjalla/> að það var hætt við þá kvöð sem
    var á sveitarfélögum að þurfa að taka þátt.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>