<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-11T15:46:57" skst="SÁA" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 15:49:01 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T15:46:57">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Þetta eru fróðleg andsvör sem hér eru veitt og
    svör hæstv. ráðherra við ýmsum málum. Ég heyrði að hæstv. ráðherra nefndi
    hér DRG, flokkunargjaldskrárkerfið sem hefur verið reynt að innleiða í
    einhverja áratugi inn í íslenska heilbrigðisþjónustu. Mig langar að
    forvitnast um það hvernig gangi að innleiða það á t.d. Landspítalanum,
    þ.e. hvernig gangi að sjá heildarmyndina á kostnaði við öll læknisverk sem
    fara fram inni á Landspítala. Síðast þegar ég vissi var ekki búið að
    innleiða þetta DRG-kerfi nema að litlum hluta á Landspítalanum. Það eru
    stórir þættir sem eru þarna fyrir utan en hafa verið leystir með
    einhverjum sérstökum samningum, ef ég skildi það rétt, um einstök
    læknisverk, inni á spítalanum samt sem áður. Ég velti því fyrir mér hvort
    hæstv. ráðherra gæti aðeins farið yfir þetta kerfi. Teldi hún til bóta að
    innleiða það að fullu? Ef ekki, í hvaða stöðu eru stjórnvöld á hverjum
    tíma til að átta sig á kostnaði við læknisverk? Ég tala nú ekki um ef í
    sæti heilbrigðisráðherra situr ekki læknismenntaður einstaklingur, sem er
    nú oftast. Er ekki nauðsynlegt að svona kerfi sé við lýði þannig að
    stjórnvöld og löggjafinn, fjárveitingavaldið, eigi hægt um vik að átta sig
    á kostnaði?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>