<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="heilbrrh." frhr="0" id="r2026-09-11T15:49:09" skst="AMöll" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 15:51:22 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T15:49:09">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Sigríði Andersen góða spurningu. DRG
    er svokölluð þjónustutengd fjármögnun, eins og þingmaðurinn eflaust veit.
    Þar er sem sagt greitt fyrir tegund og umfang þjónustu í staðinn fyrir að
    hafa einungis föst fjárlög og þarna er að baki mjög nákvæm flokkun og
    kostnaðarvigt. Þetta eru 870 flokkar og svo er vigt margfölduð með
    einingaverði sem er fast. Þarna vinna saman embætti landlæknis og
    Sjúkratryggingar og ég held að það sé bara ljómandi góð kostnaðargreining,
    t.d. inni á Landspítala. Við erum byrjuð að nota DRG á Landspítala og á
    Sjúkrahúsinu á Akureyri. Það verður aldrei þannig að það falli allt undir
    DRG, öll fjármögnun á spítalanum. Það er sirka helmingur núna. Síðan er
    verið að innleiða DRG á Heilbrigðisstofnun Vesturlands. Það er auðvitað
    heilmikið gert á sjúkrahúsinu á Akranesi. Þar er búið að vera keyra
    svokallaða skuggakeyrslu og verður byrjað að greiða þannig á næsta ári.
    Þetta má sveiflast, það er eitthvert viðmið og svo má það sveiflast upp
    eða niður um 3–4% og þá er greitt meira eða minna eftir atvikum. </ns:mgr>

    <ns:mgr>Við erum að skoða kerfið í heild sinni og ég er með skýrslu heima
    á borði sem ég byrjaði að lesa en er ekki búin með. Það þarf að
    endurspegla þetta grunnviðmið; Landspítali kvartar um að það sé ekki nógu
    hátt. Síðan er auðvitað verið að trappa upp fjármögnun, það er því verið
    að bæta við svona 200 milljónum, alla vega er það talan fyrir næsta ár sem
    er verið að bæta í þennan svokallaða DRG-pott. Hins vegar vantar upp á
    kostnaðargreiningu í einkarekna kerfinu og Ríkisendurskoðun hefur beint
    þeirri athugasemd til Sjúkratrygginga. Þar þurfum við að gera
    betur.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>