<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-11T15:51:30" skst="SÁA" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 15:52:49 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T15:51:30">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég hef efasemdir um að það sé nægilegt að bara
    helmingur þjónustunnar á Landspítalanum sé kostnaðargreindur. Ef ég hef
    skilið rétt umræðuna er t.d. öldrunarþjónusta ekki DRG-greind og ég velti
    því fyrir mér hvort það sé ekki til þess fallið að reyna að greina þetta
    eitthvað aðeins betur. En varðandi t.d. öldrunarþjónustuna langar mig að
    spyrja út í mál sem hefur lengi verið þráttað um í samskiptum ríkis og
    þeirra einkaaðila sem reka nánast öll hjúkrunarheimilin, þ.e. samninga um
    leigu á húsnæði. Mig langaði bara að vita í hvaða farvegi viðræður við
    þessa aðila eru og hvort það stefni í að ríkið greiði fyrir leigu á því
    húsnæði sem það sannarlega hefur gert samning um fyrir eldri borgara á
    hjúkrunarheimilum.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>