<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="heilbrrh." frhr="0" id="r2026-09-11T15:52:56" skst="AMöll" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 15:53:59 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T15:52:56">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka aftur hv. þm. Sigríði Andersen fyrir góða
    spurningu. Þetta er alveg rétt, það er tekist á um kostnað vegna húsnæðis.
    Þar hafa fjármunir úr Framkvæmdasjóði aldraðra verið nýttir til minni
    háttar viðhalds og slíks. Það kom út skýrsla um svokallaða leiguleið og
    til að gera langa sögu stutta þá verður byrjað að greiða fyrir húsnæði
    undir öldrunarþjónustu í einkaeigu á næsta ári. Þarna eru allmiklir
    fjármunir undir og það verður innleitt í skrefum, ef ég man rétt, á þremur
    árum. Þannig að þetta er í augsýn. Ég sat fund um þetta auðvitað með
    fjármálaráðherra og félagsmálaráðherra.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>