<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-11T15:54:11" skst="IIsak" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 15:55:20 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T15:54:11">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Það er nú ansi margt sem mann langar til að spyrja
    hæstv. ráðherra út í núna í tengslum við fjárlögin en við verðum örugglega
    að eiga það inni fyrir 2. umræðu. En ég staldraði aðeins við svör hæstv.
    ráðherra áðan þegar ég spurði hana út í fækkun stöðugilda, þessa 1% fækkun
    stöðugilda sem hún er að leggja til hérna á heilbrigðisstofnunum og að það
    eigi að hlífa framlínustarfsmönnum. Þar sagði hæstv. ráðherra, með leyfi
    forseta: „Ég sé fyrir mér … “, og nefndi hugsanlega millistjórnendur eða
    starfslok og það ættu einhverjir forstöðumenn að sjá um að segja upp þessu
    starfsfólki. Núna er það hæstv. ráðherra sem er að leggja línurnar og er
    að leggja þetta til, að það eigi að hagræða í þessum heilbrigðisstofnunum.
    Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra — hún hlýtur að hafa sýn á þetta þar
    sem hún er að leggja þetta til: Hvaða störf leggur hæstv. ráðherra til að
    verði lögð niður? Og hvað eru þetta mörg stöðugildi sem þarf að segja upp
    til þess að við náum þessari 1% hagræðingu?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>