<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-11T15:56:24" skst="IIsak" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 15:57:35 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T15:56:24">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið en þetta skýrir
    kannski ekki alveg nægilega hvernig við ætlum að gera þetta, með hvaða
    hætti og hvað við eigum að fá út úr þessu. Það er alveg ljóst að við erum
    að fara að samþykkja þessi fjárlög núna fyrir lok þessa árs. Það þarf því
    heldur betur að fara að huga að þessu ef það á að gera þetta og þessi
    hagræðing á að nást fram við fjárlögin.</ns:mgr>

    <ns:mgr>En mig langaði samt að nýta tækifærið núna og spyrja út í
    hjúkrunarrými og mannaflaþörf í öldrunarþjónustu. Það hefur komið fram hér
    að þau hafa fylgt eftir framkvæmdaáætlun síðustu ríkisstjórnar þegar kemur
    að uppbyggingu hjúkrunarmannvirkja og ég fagna því mikið og vil hrósa
    hæstv. ráðherra fyrir að fylgja þessu eftir og koma þessu á fót. Það er
    mjög jákvætt að við séum að fjölga hér hjúkrunarrýmum. Hins vegar er það
    viðurkennd staðreynd að mönnun fagfólks í hjúkrunarrýmum verður áfram
    mikil áskorun. Nú er verið að auka framlög til reksturs nýrra
    hjúkrunarrýma umtalsvert. En hvaða raunverulegu aðgerðir eru í gangi til
    að tryggja mannskap fyrir þessi hjúkrunarrými svo að ný rými standi ekki
    tóm vegna skorts á hjúkrunarfræðingum og öðru fagfólki?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>