<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="heilbrrh." frhr="0" id="r2026-09-11T15:57:41" skst="AMöll" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 15:58:53 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T15:57:41">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka þessa góðu spurningu. Vissulega voru einhver
    verkefni komin í gang en við höfum líka tekið upp miklu fleiri en voru á
    framkvæmdaáætlun áður og ég minni á að á sex ára tímabili, 2019–2025,
    fjölgaði rýmum um 69 samtals.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Mannafli er auðvitað stór spurning. Það eru gríðarlega miklar
    greiningar í gangi og við erum sérstaklega að skoða hvernig mönnun á
    hjúkrunarheimilum verður samsett. Þar hefur verið vinna í gangi sem
    byrjaði í tengslum við kjarasamninga við Eflingu. Þar erum við að skoða
    hversu hátt hlutfall þarf að vera hjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar o.s.frv.
    Við erum líka að horfa á að ófaglært fólk fái sérstakt námskeið. Það er
    því mjög margt undir. Ég held að við verðum að herða á því að mennta
    fleiri sjúkraliða. Þar er samtal komið í gang. Síðan vinnur
    heilbrigðisráðuneytið að því að gera mælaborð þar sem við munum sjá
    rauntímamönnun.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>