<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-11T15:59:18" skst="GAS" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 16:07:08 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T15:59:18">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Það vilja allir styrkja Ísland, sýna ábyrgð í
    efnahagsstjórn og byggja upp innviði á Íslandi. Við viljum betri
    heilbrigðisþjónustu, betri vegi, sterkari skóla, fleiri hjúkrunarrými og
    öflugri löggæslu. Flestir vilja líka að borga minni skatta og minni gjöld.
    En verkefnið er á endanum að dæmið gangi upp. Ríkið getur ekki ár eftir ár
    eytt meiru en það aflar. Við getum ekki endalaust rekið ríkið og ríkissjóð
    á yfirdrætti. Þess vegna er stærsta fréttin í þessu fjárlagafrumvarpi sem
    við ræðum hér í dag í raun mjög einföld: Við ætlum að ná endum
    saman.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Frá árinu 2019 til loka þessa árs er
    uppsafnaður halli ríkissjóðs áætlaður 866 milljarðar kr. Á sama tíma hefur
    vaxtakostnaður ríkissjóðs vaxið gríðarlega. Hann var um 59 milljarðar árið
    2021 en er áætlaður um 168 milljarðar í ár. Auðvitað varð hluti af þessum
    halla til vegna áfalla sem stjórnvöld réðu ekki við. Við fórum í gegnum
    heimsfaraldur, jarðhræringar og mikla óvissu í alþjóðakerfinu en
    skuldirnar hverfa ekki þó að áfallinu ljúki og vaxtareikningurinn stækkar
    bara og stækkar. Því meira sem ríkið þarf að eyða í vexti því minna
    svigrúm höfum við til að gera allt hitt sem við viljum gera, til að reka
    heilbrigðiskerfið, til að mennta börnin okkar, til að byggja samgöngur og
    tryggja öryggi fólks. Þess vegna skiptir máli að ná aftur stjórn á
    ríkisfjármálum, ekki vegna þess að núllið sjálft sé einhver töfratala
    heldur vegna þess að við eigum ekki að senda reikninginn fyrir þjónustu
    dagsins í dag til framtíðarinnar, á vöxtum.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Það skiptir líka máli hvernig við náum endum
    saman. Það væri hægt að loka fjárlagagatinu með flötum niðurskurði. Það
    væri hægt að segja: Skerum bara jafnt niður alls staðar í
    heilbrigðiskerfinu, í skólunum, í löggæslunni, í þjónustu við börn og í
    þjónustu við eldra fólk. En það er ekki okkar leið. Aðhald án
    forgangsröðunar er ekki ábyrgt, það er bara niðurskurður og við ætlum að
    forgangsraða. Þess vegna erum við, á sama tíma og við náum ríkissjóði í
    jafnvægi, að halda áfram að byggja upp grunnþjónustuna. Við höfum sett af
    stað uppbyggingu á 1.400 hjúkrunarrýmum um allt land og markmiðið er ekki
    bara að fjölga rýmum. Þetta snýst um að eldra fólk fái þá þjónustu sem það
    þarf á að halda og á skilið. Einnig hjálpar þetta um leið Landspítalanum
    að sinna þeim sem þurfa raunverulega á sjúkrahúsmeðferð að halda. Við
    höldum áfram að byggja upp heilbrigðiskerfið, framkvæmdir við stækkun
    sjúkrahússins á Akureyri eru hafnar og ný matsdeild bráðamóttöku
    Landspítala á að taka til starfa í haust. Við bætum líka í þjónustu við
    börn og fjölskyldur en á næsta ári er gert ráð fyrir 8,8 milljörðum kr. í
    ný framlög til þeirra mála. Þar vinnum við í átt að mjög skýru markmiði:
    Börn eiga ekki að þurfa að bíða eftir þjónustu sem þau þurfa á að halda.
    </ns:mgr>

    <ns:mgr>Við ætlum líka að halda áfram að vinna upp innviðaskuldina. Við
    höfum aukið fé í viðhald og fullfjármagnað vetrarþjónustu. Samþykkt hefur
    verið samgönguáætlun og undirbúningsframkvæmdir fyrir Fljótagöng hefjast
    strax í haust. Innviðafélaginu er svo ætlað að gera okkur kleift að ráðast
    í stór verkefni á borð við Sundabraut, Hvalfjarðargöng II og frekari
    jarðgangagerð. Þetta er algjör lykilpunktur. Við erum ekki að velja á
    milli ábyrgra ríkisfjármála og öflugs velferðarsamfélags. Við þurfum ábyrg
    ríkisfjármál til að geta staðið undir öflugu velferðarsamfélagi til lengri
    tíma.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Það er ekkert töfrabragð í þessum fjárlögum.
    Mér finnst mikilvægt að við segjum það bara eins og er að það þarf að
    halda aftur af útgjöldum. Það þarf að hagræða og já, það þarf líka að afla
    meiri tekna. Aðhald og hagræðing í frumvarpinu eiga að skila um 44
    milljörðum kr. Nýjar tekjuráðstafanir eru svo um 22,6 milljarðar kr. Sú
    mynd að verið sé að loka hallanum fyrst og fremst með nýjum sköttum og
    gjöldum stenst því einfaldlega ekki. Þegar við þurfum að afla meiri tekna
    skiptir líka máli hvar við sækjum þær. Við teljum eðlilegt að bankar sem
    hafa skilað miklum hagnaði og arðsemi umfram eigin markmið leggi meira
    til. Við þekkjum það af úttekt síðustu ríkisstjórnar að þegar
    bankaskatturinn var lækkaður skilaði sú lækkun sér ekki til neytenda.
    Bankarnir hafa á síðastliðnum árum skilað sögulegum hagnaði á kostnað
    almennings og þeir eru vel aflögufærir til að leggja meira til
    uppbyggingar innviða á Íslandi. </ns:mgr>

    <ns:mgr>Við teljum eðlilegt að sanngjarnt gjald sé tekið fyrir nýtingu á
    sameiginlegum auðlindum þjóðarinnar. Þetta á við um veiðigjöld og
    lagareldi en líka nýtingu á náttúruperlum í eigu íslensku þjóðarinnar. Því
    teljum við eðlilegt að ferðaþjónustan, sem hefur vaxið gríðarlega og
    byggist að stórum hluta á íslenskri náttúru og innviðum, leggi sitt af
    mörkum til að standa undir þeim. </ns:mgr>

    <ns:mgr>En það þýðir ekki að allar ákvarðanir í þessum fjárlögum séu
    auðveldar, þær eru það ekki. Það er fullkomlega eðlilegt að fólk spyrji
    gagnrýninna spurninga um einstakar ráðstafanir. Hlutverk okkar hér á
    Alþingi verður að rýna þetta fjárlagafrumvarp vel, bæði hér í þingsal og
    líka í fjárlaganefnd.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég vil líka, virðulegur forseti, beina einni spurningu til
    stjórnarandstöðunnar því ég hef verið að hlusta á umræðuna í dag og í gær.
    Það má alveg gagnrýna bankaskattinn, það má gagnrýna aðhaldið og það má
    gagnrýna einstök gjöld. Það má kalla eftir meiri peningum í nánast alla
    málaflokka ríkisins. En þá verður líka að svara einni spurningu: Hvernig á
    að ná endum saman? Hvaða útgjöld viljið þið lækka? Hvaða tekna viljið þið
    afla? Eða viljið þið halda áfram að reka ríkissjóð á yfirdrætti eins og
    síðastliðin tvö kjörtímabil? Það er ekki hægt að vera á móti
    tekjuöfluninni, á móti aðhaldinu, og á sama tíma að kalla eftir meiri
    útgjöldum og segjast samt styðja markmiðin um að reka ríkissjóð án halla.
    Dæmið verður að ganga upp. Það gildir um ríkisstjórnarflokkana jafnt og
    minni hlutann á Alþingi.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Þetta eru ekki fjárlög þar sem öllum óskum er
    mætt. Slík fjárlög eru einfaldlega ekki til. Þetta eru fjárlög þar sem við
    tökum stöðunni eins og hún er og sýnum ábyrgð í rekstri ríkisins. Við
    hættum að reka ríkissjóð á yfirdrætti. Við höldum aftur af útgjöldum þar
    sem við getum og við öflum tekna þar sem við teljum sanngjarnt að gera
    það. Á sama tíma erum við að forgangsraða í heilbrigðiskerfið, til
    barnanna okkar, til eldra fólks, í menntakerfið, öryggi og innviði. Það er
    líklegast auðveldasta verkefni í heimi að vera stjórnmálamaður sem lofar
    öllum aukinni þjónustu og skattalækkunum á sama tíma. En það er erfiðara
    að láta dæmið ganga upp eins og síðastliðin ár hafa sýnt. Það er verkefni
    ábyrgra stjórnvalda og þannig náum við niður vöxtum og verðbólgu í
    íslensku samfélagi.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>