<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-11T16:07:23" skst="ÓA" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 16:09:33 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T16:07:23">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Herra forseti. Ég vil þakka hv. þm. Guðmundi Ara Sigurjónssyni
    kærlega fyrir sína ræðu. Mér fannst bara kristallast ágætlega í henni það
    verkefni sem við stöndum frammi fyrir hér. Það kristallaðist líka í henni
    sá reginmunur sem er á hægri mönnum og vinstri mönnum. Ég verð að víkja að
    því í upphafi og benda hv. þingmanni á að vissulega tók núverandi
    ríkisstjórn við erfiðu búi. Það var þó ekki eins þungt og menn vildu vera
    láta og jafnvel má kannski segja að það hafi verið ákveðin sýndarmennska í
    gangi þar, t.d. þegar valkyrjurnar ákváðu að taka hlé á sinni vinnu og
    síðan kom í ljós að ríkissjóður var betur staddur en af var
    látið.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Mig langar að forvitnast hjá hv. þingmanni. Nú lá verkefnið í
    rauninni fyrir snemma árs 2025. Af hverju var ekki ákveðið að vera með
    skynsamlegar væntingar um hvað menn gætu ráðist í miðað við þær forsendur
    sem lágu fyrir? Af hverju ákváðu fyrirsvarsmenn ríkisstjórnarinnar ekki að
    skapa hóflega væntingar um frekari útgjöld en leggja hins vegar allt í það
    að finna hagræði og spara? Mér fannst reyndar farið ágætlega af stað með
    því að t.d. óska eftir sparnaðartillögum, ríkisstjórnin gerði vel í því og
    þjóðin tók vel undir það. En síðan hefur ekkert sést af þeim tillögum.
    Hverju svarar hv. þingmaður um að það hefði verið rangt að stofna til jafn
    mikilla útgjalda og gert var á upphafsdögum þessarar ríkisstjórnar? Þá
    sætum við kannski ekki þessari súpu sem við sitjum í dag.</ns:mgr>

    <!--Hlusta: 16:08:49 Ég heyri ekki orðið á undan „ríkisstjórnarinnar“ //glg-->
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>