<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-11T16:09:41" skst="GAS" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 16:11:56 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T16:09:41">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þm. Ólafi Adolfssyni fyrir
    hans andsvar. Sú súpa sem við sitjum í í dag er einfaldlega sú að í fyrstu
    fjárlögum þessarar ríkisstjórnar var hallarekstur helmingaður og nú á að
    eyða honum alveg. Á sama tíma erum við búin að vera í sögulegri
    uppbyggingu innviða, hvort sem við lítum til samgangna,
    heilbrigðiskerfisins, öldrunarþjónustu eða fleiri þátta. Verkefnið er
    stórt. Það er alveg skýrt, og ég kom inn á það í minni ræðu, að þegar
    ríkisstjórnin tók við var uppsafnaður halli síðustu ríkisstjórnar 866
    milljarðar og innviðaskuldin var metin á hundruð milljarða. Fólkið í
    landinu var líka að kalla eftir þjónustuaukningu, bættu viðhaldi vega,
    bættri heilbrigðisþjónustu, að amma og afi kæmust í hjúkrunarrými. Þannig
    að verkefnin voru vissulega stór þegar ríkisstjórnin tók við. Núna í
    næstum tvö ár hefur ríkisstjórnin unnið að því að spara þar sem hægt er að
    spara. Ríkisstjórnin byrjaði á sjálfri sér, lagði niður eitt ráðuneyti,
    fækkaði ráðuneytum, óskaði eftir sparnaðartillögum, hefur ráðist í
    umfangsmiklar hagræðingaraðgerðir, sameiningar stofnana, fækkun
    starfsfólks, og reynt að tryggja að við séum samt að verja grunnþjónustu
    við íbúa landsins. Það var enginn sem lofaði því að skerða grunnþjónustu
    við íbúa fyrir síðustu kosningar. Allir flokkar ætluðu að bæta þá þjónustu
    en við tökum það verkefni alvarlega að ná endum saman.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Hv. þingmaður kom inn á það að hér kristallaðist einhver munur á
    hægri og vinstri mönnum. Ég vil í rauninni meina að hér kristallist
    aðallega munur á þeim sem eru ábyrgir í fjármálum og þeim sem eru það
    ekki. Ég hef setið í bæjarstjórn í tíu ár með Sjálfstæðismönnum í hreinum
    meiri hluta þar sem þeir lifa eftir þeirri kreddu að ekki megi hrófla við
    neinum gjöldum en einfaldlega að safna skuldum. Erum við að létta álögur á
    íbúa sveitarfélaga eða landsins með því að skila halla? Nei, við erum ekki
    að gera það. Við erum einfaldlega að fresta skattgreiðslum eða gjöldum og
    setja vexti á. Ég er tilbúinn að rökræða hin ýmsu gjöld og skattprósentur
    og fleira þegar við erum komin á núllið. En mér finnst það óábyrgt af
    stjórnmálaflokki sem var við völd og náði ekki endum saman að vera líka að
    tala um hugmyndafræðina á bak við tekjuöflun ríkisins.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>