<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-11T16:12:03" skst="ÓA" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 16:14:20 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T16:12:03">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Guðmundi Ara Sigurjónssyni fyrir
    sitt svar. Til að halda því til haga þá er það nú ekki þannig að
    ríkisstjórnin sé að taka við 866 milljarða kr. uppsöfnuðum hallarekstri.
    134 af þeim milljörðum urðu til á vakt vinstri stjórnar, 134 milljarðar,
    bara svo því sé haldið til haga. Það sem ég var að reyna að sannfæra hv.
    þingmann um að það hefði kannski verið skynsamlegra að gera var —
    ríkisstjórnin hafði í rauninni öll tök á að vera með góða væntingastjórnun
    á þessum tíma. Það var mikil velvild í garð ríkisins. Það sem ég er að
    segja við hv. þingmann er að þau hafi glatað ákveðnu tækifæri til þess að
    draga verulega úr útgjöldum. Ég ætla að leyfa mér að segja að það hafi
    ekkert legið fyrir um að það væru einhver bráðaútgjöld sem væri þörf á. Ég
    get hins vegar alveg skilið að það hafi verið ákveðin óþreyja, búin að
    vera lengi í stjórnarandstöðu, að vilja koma sínum málum fljótt og
    örugglega af stað. En þess vegna erum við í nákvæmlega þeirri stöðu sem
    við erum í dag. Menn eru kannski hugsanlega að taka erfiðar ákvarðanir eða
    hefðu þurft að taka. Ég veit að núverandi ríkisstjórn ætlar ekki að
    andmæla því að það hafi verið óvæntur tekjuvöxtur árið 2025 og 2024 líka.
    Það er vitað, það lá fyrir óvæntur tekjuauki og mun meiri tekjur en menn
    gerðu ráð fyrir. Það hefði því verið hægt, að mínu mati, að fara
    skynsamlegar í þetta og, ég ætla að leyfa mér að segja það, draga verulega
    úr útgjöldum. Þar greinir okkur einfaldlega á. Ég er reyndar þeirrar
    hugsjónar að við eigum að skilja sjálfsaflafé eftir hjá fólki og t.d. ekki
    að búa þannig um hnútana að fólk og fyrirtæki séu skattlögð í drep. Þú
    tapar í rauninni viljanum til þess að gera vel ef þú hefur ekkert upp úr
    því.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>