<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-11T16:14:29" skst="GAS" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 16:16:31 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T16:14:29">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Ólafi Adolfssyni fyrir seinna
    andsvar. Það var kannski engin spurning í hans andsvari en hann lýsti
    ákveðinni skoðun. Eins og ég kom inn á í fyrra svari hefur allt þetta
    kjörtímabil einfaldlega snúist um að ná hallalausum fjárlögum. Við höfum
    verið í gríðarlegum hagræðingaraðgerðum. Við byrjuðum á því að fækka
    ráðuneytum. Við höfum sett þak á hækkun launa kjörinna fulltrúa og æðstu
    embættismanna. Við erum að vinna í því að sameina stofnanir og fækka þeim
    um 15%. Við erum búin að sameina sýslumannsembættin. Við erum að velta við
    öllum steinum og sjá hvar hægt er að hagræða í rekstri, enda á að hagræða
    um 44 milljarða í þessum fjárlögum. Ég gef því lítið fyrir það að hér sé
    einfaldlega bara verið að skattleggja sig út úr þessum vanda. Það er verið
    að fara blandaða leið. Hvar er hægt að hagræða og hvar er hægt að sækja
    auknar tekjur með það að markmiði að reka ríkissjóð ekki lengur á
    yfirdrætti? Þannig hættum við að ýta undir vexti og verðbólgu hér á landi
    og þannig sýnum við ábyrgð og festu í rekstri. Ég er tilbúinn að skoða
    allar hugmyndir sem lúta að því hvernig við getum náð þessu hallaleysi
    fyrir næsta ár en það verður að vera jafnvægi í þeim tillögum. Það er ekki
    bara hægt að andmæla ákveðnum gjöldum ef þú skerð ekki niður í einhverri
    þjónustu á móti. Inntak ræðu þingmannsins var kannski að hér væri verið að
    ofþjónusta fólk, að það væri verið að veita of mikla þjónustu á Íslandi.
    En það er ekki það sem ég heyri þegar ég ferðast um landið. Ég heyri af
    uppsafnaðri innviðaskuld. Ég heyri af uppsafnaðri innviðaskuld í
    vegakerfinu, í heilbrigðiskerfinu, í menntakerfinu og ég heyri ákall frá
    íbúum landsins um að við einmitt bætum þjónustu við fólk sem greiðir hér
    skatta og gjöld. Ég lít á þetta sem blandað verkefni: Hvernig ætlum við að
    svara kalli landsmanna um að veita þeim þá þjónustu sem þeir kalla eftir
    og eiga skilið án þess að reka ríkið á yfirdrætti eins og hefur verið gert
    á síðastliðnum árum? Það tel ég vera skynsemi, ábyrg stjórnvöld og fyrir
    það stend ég og er stoltur af því.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>