<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-11T16:16:38" skst="JGH" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 16:18:53 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T16:16:38">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Guðmundi Ara Sigurjónssyni
    fyrir hans ræðu þó að ég hafi svo sem ekki verið sammála inntaki hennar.
    Það er rosalega auðvelt að koma hér upp og segja: Við erum að ná
    hallalausum fjárlögum, við erum að sýna ábyrgð. En hver á að borga? Á 12
    mánuðum er verið að hækka skatta og gjöld á fólk og fyrirtæki í landinu um
    64 milljarða með síðustu fjárlögum og fjárlögunum núna, um 64 milljarða.
    Það er það sem þessi ríkisstjórn er að gera og hún er að brjóta öll
    loforðin. Á kynningarfundi ríkisstjórnarinnar var sagt: Við ætlum ekki að
    hækka tekjuskatt á einstaklinga, tékk, þið eruð að gera það núna. Við
    ætlum ekki að hækka virðisaukaskatt á ferðaþjónustu, tékk, þið eruð að
    gera það núna. Við ætlum ekki að hækka skatta á lögaðila, tékk, þið eruð
    búin að gera það og eruð að gera það aftur. Þið eruð búin að brjóta öll
    loforðin sem þið voruð kosin út á, að þið ætluðuð ekki að hækka skatta og
    þið eruð að hækka skatta á alla. Ég sé að hv. þingmaður hristir hausinn
    þegar ég nefni tekjuskattinn. Með breytingum á persónuafslættinum situr
    minna eftir hjá hinum vinnandi manni. Þú getur kallað það hvaða nafni sem
    er, en það er það sem það er. Svo kemur ríkisstjórnin og hækkar allt með
    krónutölugjöldum um 5,2%. Hvaðan koma þessi 5,2%? Greiningaraðilar gerðu
    ráð fyrir 4,7–4,8% verðbólgu. Ríkisstjórnin fer fram með þetta, stefnir
    ekki að verðbólgumarkmiðinu, reynir ekki að mæta verkalýðsforystunni í að
    reyna að ná einhverri sátt og ná niður verðbólgunni. Nei, það er búmmað í
    5,2% krónutöluhækkanir, kviss bamm búmm, sem mun leiða til þess að allir
    munu fylgja á eftir. Það er fullt af sveitarfélögum sem hafa núna verið að
    fella niður gjöld eða frysta gjöld og eru að horfa til þess í
    fjárhagsáætlunum sínum. En ríkið ætlar að fara áfram með 5,2%. Mig langar
    að spyrja hv. þingmann: Finnst honum það ábyrgt að krónutöluhækkanir séu
    5,2% þegar kallað er eftir því að við náum niður verðbólgu í
    landinu?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>