<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-11T16:19:00" skst="GAS" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 16:21:14 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T16:19:00">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Jens Garðari Helgasyni fyrir
    sitt andsvar. Ég veit ekki hvort þingmaðurinn þekkir söguna um drenginn
    sem kallaði úlfur, úlfur. Ég hef hlustað á hv. þingmann hrópa hér
    skattahækkanir, skattahækkanir, skattahækkanir í rúmt ár. Hvaða
    skattprósentu er verið að breyta hér til að byrja með,
    tekjuskattsprósentu? Það er ekki til staðar. Tekjuskattur fyrirtækja var
    lækkaður á þessu kjörtímabili. En það er verið að skoða hvar er hægt að
    hagræða, hvar er svigrúm til að ná niður hallarekstri ríkisins og svo er
    líka verið að skoða hvar er hægt að sækja auknar tekjur þar sem þær eiga
    heima.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Tökum smá samanburð. Í tíð síðustu ríkisstjórnar var einfaldlega
    farin sú leið að vera með 115 milljarða meðaltalshalla á hverju ári og
    senda þann reikning til næstu ríkisstjórnar á vöxtum. Þetta er sá
    viðsnúningur sem er verið að vinna í núna. Skoðum svo sveitarfélögin í
    kringum okkur. Hvað gerir Sjálfstæðisflokkurinn þegar hann tekur við
    stjórn í sveitarfélögum? Hann er búinn að hækka leikskólagjöld sögulega á
    síðustu árum. 60% hækkun á leikskólagjöldum á síðasta kjörtímabili, hækka
    matarkostnað eldri borgara um 70% á einu bretti. Þetta voru vorverk
    Sjálfstæðisflokksins. Það er holur hljómur í því að koma hér upp og tala
    um að uppfærsla á gjaldskrám, sem allar ríkisstjórnir hafa gert ef skoðað
    er aftur í tímann nema rétt þegar samið var um að gera það ekki, séu
    einhvers konar nýjar fréttir og eitthvað annað en Sjálfstæðisflokkurinn
    hefði gert. Þetta hefur hann bæði gert í ríkisstjórn og er að gera núna í
    sveitarstjórnum.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Þingmaðurinn spyr varðandi 5,2% krónutöluhækkanirnar hvort það
    væri eðlilegt að skoða aðra prósentutölu þar. Ég heyrði það í máli
    forsætisráðherra að það væri verið að ræða þessa hluti einmitt núna við
    aðila vinnumarkaðarins, verkalýðsforystuna og Samtök atvinnulífsins. Og
    eins og ég sagði í minni ræðu og mínum svörum og andsvörum hér áðan:
    Skoðum endilega allar hugmyndir en við föllum ekki frá því prinsippi að
    sýna ábyrgð og festu í rekstri ríkisins og reka ríkið hallalaust.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>