<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-11T16:21:21" skst="JGH" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 16:23:42 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T16:21:21">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Þetta er náttúrlega bara munurinn á því að
    vera hægri og vinstri maður. Vinstri mennirnir halda að þeir geti skattað
    sig til hagsældar, skattað sig og endalaust lagt meiri og meiri skatta á
    fólk og fyrirtæki án þess að það muni breyta nokkru. Ég vil benda hv.
    þingmanni á það að á árunum 2013–2023 voru skattar lækkaðir um 313
    milljarða. Hv. þingmaður nefnir hér einhverjar hækkanir hjá Reykjavík á
    sama tíma og ríkisstjórn hv. þingmanns er að hækka komugjöld sjúklinga um
    100%. Ég þakka fyrir að krónutölugjöldin eru ekki 100% en í komugjöldum
    sjúklinga er 100% hækkun. Ég held að hv. þingmaður ætti að horfa til þess
    sem er verið að gera í Reykjavík núna, þar sem hefur verið staðið í miklum
    hagræðingum, þar sem verið er að taka til raunverulega í rekstrinum. Ekki
    færa einhverjar tölur á milli ára heldur taka raunverulega til í
    rekstrinum. Þar sem Sjálfstæðisflokkurinn er með 70% fylgi í Ölfusi eru 36
    tímar í leikskóla fríir og fyrir hina aukatímana borgar þú 17.000 kr.
    Þarna er Sjálfstæðisflokkurinn með hreinan meiri hluta. Nýr meiri hluti
    undir stjórn Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ er búinn að vera að fella
    niður gjöld sem voru lögð á í tíð vinstri manna. Sjálfstæðisflokkurinn í
    sveitarstjórnum um allt land hefur sýnt það og sannað að hann er að taka á
    rekstri sveitarfélaganna.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Mig langar líka að spyrja í lokin um bankaskatt upp á 6 milljarða.
    Mér heyrðist nú á ræðu hv. þingmanns að hann skilji í rauninni ekki mikið
    í eðli bankastarfsemi þegar sagt er: Það er nóg til og þeir geta borgað
    meira. Allir sem til þekkja og kunna að reikna út hver áhrifin verða eru
    búnir að sýna fram á að bankaskattur upp á 6 milljarða mun þrýsta upp
    vöxtum. 5,2% krónutöluhækkanir, bankaskattur upp á 6 milljarða, sem er
    líka að ýta upp vaxtastiginu. Er ríkisstjórnin alveg hætt að velta því
    fyrir sér að reyna að taka á verðbólgu og vöxtum í landinu? Miðað við
    þessi fjárlög er ekki verið að horfa til þess að reyna að létta undir með
    heimilunum í landinu með því að lækka hér verðbólguna eða
    vextina.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>