<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-11T16:23:48" skst="GAS" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 16:25:54 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T16:23:48">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég þakka fyrir seinna andsvar. Hv. þingmaður
    státar sig af því að í tíð síðustu ríkisstjórnar hafi skattar verið
    lækkaðir um rúma 300 milljarða, á sama tíma og hallarekstur ríkisins var
    rúmlega 800 milljarðar eða meðaltalshalli upp á 115 milljarða á ári í tíð
    síðustu ríkisstjórnar síðustu sjö árin. Þessu státar hv. þingmaður sig af
    og segir: Þetta er munurinn á hægri og vinstri manni. Það eina sem ég
    heyri er að það er munur á þeim sem lifa í einhvers konar hugsjónaveröld
    og eru ekki í tengslum við veruleikann og þeim sem beita raunhæfum
    sjónarmiðum til að ná stjórn á rekstri ríkisins. <ns:frammíkall/> Það að
    lækka skatta og eiga ekki fyrir útgjöldum er ekki göfugt, það er ekki til
    að standa í ræðustóli Alþingis og monta sig af. Það að skila halla á
    rekstri ríkisins er einfaldlega frestun á skattgreiðslum sem
    framtíðarríkisstjórnir, framtíðarkynslóðir og -skattgreiðendur þurfa að
    greiða til baka og það á vöxtum. Það dregur úr súrefni kerfisins til að
    geta veitt þá þjónustu sem íbúar landsins kalla eftir. Íbúar landsins eru
    ekki að kalla eftir því að lifa í draumaheimi hv. þingmanns, að hér séu
    lækkaðir skattar sem ekki er innstæða fyrir. Íbúar landsins eru að kalla
    eftir betri heilbrigðisþjónustu, bættum vegasamgöngum, að við bætum
    menntakerfið okkar og það er það sem þessi ríkisstjórn er að gera á sama
    tíma og hún tekur til eftir uppsafnaðan halla fjármálaráðuneytis
    Sjálfstæðisflokksins. Þetta er munurinn á þessari ríkisstjórn og þeirri
    síðustu. Það að halda hér innblásnar ræður um að lækka skatta en skila
    halla sé jákvætt skref, það er bara birtingarmynd þessarar umræðu. Ég ber
    mikla virðingu fyrir ólíkum sjónarmiðum og því að sumir vilji lækka skatta
    en aðrir telji að við eigum að fjármagna opinbera kerfið. En mér finnst að
    grunnpunkturinn þurfi samt að vera að ná endum saman. Þegar við erum búin
    að ná endum saman getum við rætt hvort við eigum að lækka skatta og draga
    úr þjónustu eða hvort við ætlum að fjármagna aukna þjónustu. En á meðan
    við erum að safna halla þá er engin rökræða um hvort eigi að hækka eða
    lækka skatta. Ábyrg stjórnvöld skila hallalausum fjárlögum og það ætlum
    við að gera.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>