<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-11T16:26:07" skst="RagnaS" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 16:30:35 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T16:26:07">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Hæstv. forseti. Uppsafnaður halli ríkissjóðs er 866 milljarðar kr.
    frá árinu 2019. Síðast var lagt fram fjárlagafrumvarp með afgangi árið
    2017 fyrir árið 2018 og nú förum við loksins úr mínus í plús, fyrr en
    áætlað var af fyrri ríkisstjórn. Hvað þarf til að loka gatinu? Við höfum
    valið blandaða leið: aukningu tekna og aðhald í ríkisrekstri. Nánar
    tiltekið fara 44 milljarðar kr. í minnkuð útgjöld og tæplega 23 milljarðar
    kr. í nýjar tekjuráðstafanir.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Margir hv. þingmenn hér í þessum sal hafa skammast út í að verið
    sé að sækja tekjur án þess þó að útfæra eða leggja fram hvaða þjónustu á
    að skera niður í staðinn. Á sama tíma hafa ýmsir gagnrýnt að verið sé að
    beita aðhaldi án þess þó að leggja samtímis fram hvernig þeir vilja auka
    tekjur í staðinn. Þetta er tugmilljarða króna gat sem þarf að loka til að
    ná fram hallaleysi og því miður bera margir gagnrýnendur hér í þessum sal
    og utan hans hreinlega ábyrgð á þessum uppsafnaða halla ríkissjóðs en taka
    hins vegar á því enga ábyrgð.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Já, það er auðveld leið að lofa öllu fögru, undirrita
    viljayfirlýsingar og kjarasamninga, svo dæmi séu nefnd, án þess að eiga
    fyrir þeim, án þess að fjármagnið fylgi og án þess að útfært sé hvernig á
    að eiga fyrir útgjöldunum. Þetta er pólitíkin sem hefur verið rekin hér. Á
    sama tíma eru innviðir vanfjármagnaðir. Innviðaskuld samkvæmt skýrslu
    Samtaka iðnaðarins frá 2025 var á þeim tíma 680 milljarðar, þar af 265–290
    milljarðar kr. í vegakerfinu. Sömuleiðis er gríðarleg innviðaskuld í
    heilbrigðiskerfinu. Síðan ég man eftir mér hefur heilbrigðiskerfið verið
    vanfjármagnað og ekki hefur verið tekið tillit til öldrunar þjóðarinnar,
    sem dæmi. Á síðasta kjörtímabili voru byggð 69 ný hjúkrunarrými og talað
    er um að 100 á ári þurfi til þess að halda í við þörfina. Deilur milli
    ríkis og sveitarfélaga stóðu í vegi fyrir uppbyggingu á þjónustu fyrir
    fólkið í landinu. Grunnþjónustan og kerfin sem almenningur treystir á hafa
    verið kerfisbundið veikt með vanfjármögnun og yfirlýsingar einar og sér
    duga ekki til að reka þessi kerfi.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Þessu er ríkisstjórn Kristínar Frostadóttur að snúa við. Nú hættum
    við að eyða um efni fram. Ófjármögnuð loforð og ófjármagnaðar
    skattalækkanir verða ekki einkennismerki þessarar ríkisstjórnar. Aðhald er
    vissulega til staðar í nýju fjárlagafrumvarpi enda forsenda þess að við
    náum að loka gatinu og skila hallalausum fjárlögum. En áhersla er lögð á
    að hlífa framlínustörfum, sem dæmi innan heilbrigðisþjónustunnar, hlífa
    velferðinni, greiðslum almannatrygginga, hlífa þeim kerfum sem við viljum
    standa vörð um hér í landinu og byggja upp innviðina. </ns:mgr>

    <ns:mgr>Bara á tveimur árum er árangurinn þessi: Hallalaus fjárlög í
    fyrsta sinn í hartnær áratug og hærra hlutfall fjármagns sem rennur í
    grunnkerfin okkar þrátt fyrir aðhald á tekjuhliðinni. 244 ný hjúkrunarrými
    á 12 mánuðum í kjölfar tímamótasamkomulags sem leitt var af
    ríkisstjórninni milli ríkis og sveitarfélaga um að ríkið taki yfir
    fjármögnun á uppbyggingu hjúkrunarheimila til að leysa úr þeim hnút sem
    þjónusta við almenning í landinu var föst í. Stóraukin fjárfesting í
    samgönguinnviðum með nýju innviðafélagi og forgangsröðun fjármagns og líka
    með því að sækja auknar tekjur. Þessi ríkisstjórn er að snúa blaðinu við,
    engar ófjármagnaðar skattalækkanir, engin ófjármögnuð loforð. Þetta er
    erfiðari leiðin, óvinsælli leiðin: að eiga fyrir því sem maður eyðir í. En
    hún er sú ábyrga og ég hlakka til að takast á við það verkefni.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>