<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-11T16:30:49" skst="JGH" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 16:32:54 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T16:30:49">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Rögnu Sigurðardóttur fyrir
    hennar ræðu og það virðist vera búið að gefa út sömu línu núna hjá
    stjórnarþingmönnunum að tala um þennan 800 milljarða kr. yfirdrátt.
    Reyndar á vinstri stjórnin um 134 milljarða af þeim. En ég held að það
    væri hollt fyrir stjórnarþingmenn að lesa það þegar þeir hafa verið að
    setja þetta inn á samfélagsmiðla að almenningur er meðvitaður um það að
    þeir 600 milljarðar sem eftir eru eru til komnir út af Covid og
    jarðeldunum í Grindavík. Þau gleyma því alltaf þegar þau koma og tala um
    þennan yfirdrátt og það væri meiri bragur á því að taka það fram.</ns:mgr>

    <!--***Hann segir fyrst 800 milljóna kr. yfirdrátt en síðan talar hann um 140 milljarða af því. Heyrði ég rétt? Eru þetta ekki örugglega milljarðar sem um er að ræða?-->

    <ns:mgr>Mig langar að spyrja hv. þingmann — af því að verið er að tala um
    þennan yfirdrátt, nú var hvorugt okkar á þingi þegar Covid-árin voru hér
    en ég er minnugur þess að hafa horft á ræður flokkssystkina hennar sem
    voru á þingi og gagnrýndu ríkisstjórnina dag eftir dag fyrir að gera ekki
    nóg, eyða ekki nógu miklum peningum og að það hefði þurft að gera meira og
    það hefði þurft að eyða meiri peningum. Ég held að þessi umtalaði
    yfirdráttur væri líklega tvöfalt hærri ef flokkssystkini hennar hefðu
    fengið að valsa um ríkissjóð á Covid-tímanum. Mig langar að spyrja hv.
    þingmann að tvennu: Er hún sammála því að það hefði átt að fara eftir
    tillögum Samfylkingarinnar á Covid-tímanum og eyða meiri peningum í Covid?
    Mig langar líka að spyrja hana: Er hægt að lækka vaxtagreiðslur ríkisins
    með því t.d. selja Landsbankann og lækka þannig skuldir ríkisins? Og mig
    langar að spyrja hv. þingmann líka: Er hún sammála því að það eigi að
    selja Landsbankann?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>