<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-11T16:33:07" skst="RagnaS" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 16:35:40 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T16:33:07">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Jens Garðari Helgasyni fyrir
    andsvarið. 140 milljarðar, segir hann að vinstri stjórnin beri ábyrgð á af
    þessum uppsafnaða halla upp á 866 milljarða kr., og áðan var talað um 134
    milljarða. Það er auðvitað þannig að þetta eru árin 2025, sem eru þá
    fjárlög fyrri ríkisstjórnar, og árið 2026 þar sem var loksins verið að
    stíga skref í átt að hallaleysi. Auðvitað gætir áhrifa ákvarðana fyrri
    ríkisstjórnar í þeim fjárlögum sem var farið eftir af því að kosningarnar
    voru á óvenjulegum tíma og þingið samþykkti vissulega fjárlög fyrir næsta
    ár, þess þings sem tók við, það er hluti af þeim halla, og svo eru næstu
    fjárlög skref í átt að þessu hallaleysi.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Varðandi Covid og jarðhræringar þá er alveg rétt að það ber að
    gæta sanngirni þar. Covid, jarðhræringar og Úkraínustríðið hafa auðvitað
    áhrif og ber að taka tillit til þess. Alveg eins og núna þegar rætt er um
    vexti og verðbólgu þá sjáum við að þau áhrif sem eru til hækkunar á
    verðbólgu eru fyrst og fremst vegna stríðsins við Hormússund, hækkunar á
    eldsneyti og flugfargjöldum, þar kemur auðvitað inn fall flugfélags.
    Þannig að auðvitað eru ytri aðstæður sem vissulega hafa áhrif. Það var
    samt sem áður töluvert um ófjármagnaðar aðgerðir. Ég get bara nefnt sem
    dæmi nokkuð sem var gert nokkrum dögum fyrir kosningar: Kjarasamningar við
    lækna sem voru algerlega ófjármagnaðir og kostuðu töluverðar fjárhæðir.
    Auðvitað var ég sem læknir ánægð með þá kjarasamninga þangað til að ég
    áttaði mig á því að það var ekki búið að gera ráð fyrir þeim í neinum
    fjárhagsáætlunum, ekki 1 kr. Þannig að ég held að það liggi alveg ljóst
    fyrir <ns:bjalla/> að það verði líka að taka tillit til þeirra aðgerða sem
    voru ófjármagnaðar sem tengdust ekki endilega Covid, jarðhræringum eða
    Úkraínustríði. Tíminn er búinn. Afsakaðu það, forseti. Ég kem inn á hin
    svörin í seinna svari við andsvari.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>