<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-11T16:35:49" skst="JGH" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 16:37:13 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T16:35:49">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir hennar fyrra
    svar. Mig langar aðeins að benda hv. þingmanni í fyrsta lagi á það að
    fjárlögin 2025 — það var enginn stjórnarandstöðuþingmaður þá sem hreyfði
    við neinum mótmælum við gerð þeirra fjárlaga sem voru gerð þarna undir lok
    og rétt fyrir kosningarnar 2024. Það var enginn þingmaður sem hreyfði við
    mótmælum úr núverandi stjórnarflokkum sem þá voru í stjórnarandstöðu,
    ágætt að halda því til haga. En á síðasta ári held ég að ríkisstjórnin
    hafi síðan komið með fjóra viðauka við fjárlögin og bætt ofan í fjárlögin.
    Þannig að þau fóru nú ekki alveg eftir fjárlögunum eins og þau lágu fyrir.
    Mig langar að spyrja hv. þingmann og ítreka spurninguna: Er hún sammála
    því m.a. að selja Landsbankann og nota andvirðið til að lækka skuldir
    ríkisins og þar með lækka vaxtabyrðina og auka rýmið í fjárlögum? Er hún
    sammála því? Og mig langar líka að fá álit hv. þingmanns á því hvort hún
    telji það ekki misráðið að setja hér á 6 milljarða kr. bankaskatt ef hann
    verður til þess að þrýsta upp vöxtum á heimilin og fyrirtækin í
    landinu.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>