<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-11T16:37:23" skst="RagnaS" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 16:39:58 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T16:37:23">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Já, ég þakka hv. þingmanni fyrir seinna
    andsvarið. Ég byrja kannski bara á spurningunni um Landsbankann. Ég er á
    móti þeirri einskiptispólitík að vera endalaust að selja ríkiseignir og ég
    tel það ekki skynsamlegt að selja Landsbankann. Auðvitað tók þessi
    ríkisstjórn þátt í að koma af stað seinni hluta af sölu Íslandsbanka sem
    heppnaðist mun betur en sú fyrri. Ég tel auðvitað bara eðlilegt að vega og
    meta hverju sinni hvaða ríkiseignir má selja og hverjar ekki en auðvitað í
    þessum fjárlögum þá gerist þess ekki þörf vegna þess að það er farin þessi
    blandaða leið og það er markmiðið með henni að standa vörð um þjónustu og
    auðvitað líka að einhverju leyti að auka tekjur til lengri tíma.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Varðandi 6 milljarða bankaskattinn hefur því verið haldið fram að
    þetta muni renna beint til neytenda en það má hins vegar benda á að
    þáverandi ráðherra, Lilja Alfreðsdóttir, sem á reyndar ekki sæti á þingi
    lengur, lagði fram skýrslu um þetta þegar bankaskatturinn var lækkaður og
    sú lækkun rann að engu leyti til neytenda. Hvers vegna ætti hækkun þá að
    renna til neytenda? Ég held að bankarnir verði að svara fyrir það en
    síðastliðin ár hefur verið gríðarlegur hagnaður hjá bönkunum og í raun og
    veru langt umfram þeirra eigin arðsemismarkmið. Ég er ekki að segja að það
    séu einhver endalaus hít en þetta er vissulega til staðar.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Varðandi Covid langaði mig að koma inn á það varðandi þá sem sátu
    á þingi fyrir hönd míns flokks þá að lagðar voru til auknar tekjur á móti.
    Það var ekki þannig að aðgerðir væru lagðar fram án tekjuöflunar svo það
    komi fram. Ég átti, eins og hv. þingmaður sagði, ekki sæti á þingi þá en
    það er alveg skýrt að það var lagt til að greiða fyrir þær aðgerðir sem
    átti að ráðast í með auknum tekjum. Hins vegar hefur verið bent á það og
    m.a. hefur Seðlabankinn sagt að þær tekjur hafi varað of lengi og það hafi
    jafnvel ýtt undir hærri verðbólgu og vaxtastig.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>