<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-11T16:40:06" skst="GÞÞ" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 16:42:24 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T16:40:06">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Ég verð nú
    að viðurkenna að mér fannst hv. þingmaður vera nokkuð stóryrtur, svona
    miðað við efni. Hann var ekki mjög nákvæmur þegar kom að staðreyndum
    máls.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég vil fyrst spyrja hv. þingmann, af því að hann talaði eins og
    allt hefði verið í volli: Er ekkert að marka fjármálaráð? Er ekkert að
    marka Moody's? Er ekkert að marka Alþjóðagjaldeyrissjóðinn? Er ekkert að
    marka hæstv. ráðherra, Daða Má Kristófersson, þegar hann vísar til þess að
    þau tóku við góðu búi? Ég vek athygli á því að það var ekki bara Covid,
    Reykjaneseldar og Úkraínustríðið. WOW air fór líka á höfuðið með
    afleiðingum sem við þekkjum. Af því að hv. þingmaður talaði um að það
    hefði gengið svo vel með sölu Íslandsbanka þá var selt á mun lægra verði
    af þessari ríkisstjórn en fyrri ríkisstjórnum þegar kom að þeirri sölu.
    Ríkisstjórnin tekur svo við í desember 2024 og ákvað að breyta fjárlögunum
    2025 með því að auka hallann með fjórum fjáraukalögum og náði ekki
    hallaleysi 2026 þrátt fyrir miklu betra ástand en gert var ráð fyrir.
    Tekjurnar jukust um 60 milljarða kr. árið 2025 miðað við fjárlögin. Og
    núna ertu með næfurþunnan afgang en látum það liggja á milli
    hluta.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég spyr hv. þingmann: Af hverju fór þessi ríkisstjórn ekki eftir
    ábendingum fjármálaráðs? Af hverju lofuðuð þið fyrir kosningar að hækka
    ekki skatta? Hvar er svo blessuð sleggjan? Vextir hafa hækkað eftir að
    þessi ríkisstjórn tók við. Þeir hafa hækkað. Eftir að fjárlagafrumvarpið
    er lagt fram hækka vextirnir. Ég er með þrjár spurningar: Af hverju
    lofuðuð þið að hækka ekki skatta? Hvar er sleggjan? Af hverju fóruð þið
    ekki eftir neinu í ráðleggingum fjármálaráðs?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>