<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-11T16:42:36" skst="RagnaS" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 16:45:01 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T16:42:36">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Guðlaugi Þór Þórðarsyni fyrir
    andsvarið. Varðandi skattana þá er það auðvitað þannig að við töluðum um
    það fyrir kosningar að hækka ekki tekjuskatt. Það hefur verið talað um
    virðisaukaskatt á ferðaþjónustufyrirtæki og þar held ég að skilningur
    fólks sé almennt sá að virðisaukaskatturinn sé í eðlilegu samræmi við
    virðisaukaskatt af annarri þjónustu.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Varðandi sleggjuna þá eru hallalaus fjárlög sleggjan og stefnt
    hefur verið að því frá upphafi í tíð þessarar ríkisstjórnar. Fjármálaráð,
    var það ekki þriðja spurningin? Fjármálaráðuneytið hefur, eins og ég skil
    það, yfirfarið ábendingar fjármálaráðs mjög rækilega, tekið undir sumt og
    mótmælt öðru. Ég veit ekki hvort hv. þingmaður hafi spurt fjármálaráðherra
    að því, ég geri ráð fyrir því. Þessi spurning hefur komið upp töluvert oft
    í andsvörum hv. þingmanns við ýmsa stjórnarþingmenn, þannig að ég tel að
    hann hafi fengið svar við þessari spurningu nú þegar.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Varðandi Íslandsbanka má nefna að flestir eru sammála um að seinni
    salan hafi heppnast betur heldur en hin fyrri. Ég held að það sé almenn
    sátt um það.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Varðandi fjáraukalög þá held ég að það sé alveg rétt að við þurfum
    að sýna aðhald. Auðvitað fagna ég persónulega sumu eins og aukinni
    fjárveitingu til Landspítalans. Það verður samt sem áður að sýna aðhald og
    við getum auðvitað ekki farið í halla aftur. Það er mitt mat. Ég held ég
    sé búin að svara öllum spurningum. En til að gæta sanngirni, eins og ég
    sagði í fyrra andsvari, þá er það alveg rétt að það voru jarðhræringar,
    Covid og stríð í Úkraínu, alveg eins og það eru ytri áhrif í dag. Það er
    mjög eðlilegt að það komi fram í umræðunni <ns:bjalla/> En við viljum samt
    sem áður ná fram hallaleysi þrátt fyrir þessar erfiðu ytri
    aðstæður.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>