<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-11T16:45:06" skst="GÞÞ" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 16:47:34 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T16:45:06">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég var í þeirri ríkisstjórn sem tók við Covid,
    Reykjaneseldum, falli WOW air og Úkraínustríðinu. Ekki bera þetta saman
    við þetta grín sem er í gangi núna. Ekki bera þetta saman. Þetta eru
    væntanlega erfiðustu aðstæður sem íslenska ríkisstjórnin hefur tekið við,
    ein erfiðustu. Hér koma hv. stjórnarþingmenn aftur og aftur, telja upp
    hallann. Þeir vildu leggja meira í hann. Svo bara jú, reyndar jú, það var
    Covid, jú, jú. Það er enginn bragur á þessu. Það er enginn bragur á þessu.
    Þið tókuð við góðu búi. Þið höfðuð öll tækifærin til að ná hallalausum
    fjárlögum miklu hraðar. Það er alveg ljóst að þessi fjárlög, ef þau eru
    samþykkt svona, verða ekki hallalaus. Hef ég fengið svar við spurningunni
    um fjármálaráðið? Nei, virðulegi forseti, það hefur ekki komið svar við
    þeirri spurningu. Það er í fyrsta skipti að koma núna fram að það hafi
    orðið einhver samskipti milli fjármálaráðuneytisins og fjármálaráðs. Þeim
    samskiptum er haldið leyndum fyrir þingi og þjóð. En það liggur fyrir að
    það hefur í engu verið farið eftir þeim athugasemdum sem voru í álitsgerð
    fjármálaráðs og fjármálaáætlun var ekki einu sinni uppreiknuð. Það er
    alveg útilokað að þessi fjárlög, að öllu óbreyttu, verði hallalaus. Það
    sér það hver maður. Tekjuskatturinn, þið eruð búin að hækka tekjuskattinn
    tvisvar, bæði í síðustu fjárlögum og núna líka. Þið eruð búin að hækka
    tekjuskattinn og flesta þá skatta sem mönnum dettur í hug. Reyndar, af því
    að hv. þingmaður er læknir, þá hafið þið meira að segja verið að breyta
    gjöldum í heilsugæslunni eða í heilbrigðisþjónustu með þeim hætti að þið
    eruð að taka út það fyrirkomulag sem var sett til þess að það yrði þak á
    útgjöldum fyrir þá sem þurfa á þeirri þjónustu að halda. Sleggjan átti að
    virka strax og yfirlýsingin gekk út á það að það væri ekki þessi litla
    sleggja sem Bjarni var með, eins og það var orðað, það átti að lemja niður
    strax vexti og verðbólgu. En það hefur því miður ekki gerst. Kannski er
    það vegna þess að menn hafa ekki farið eftir ráðleggingum <ns:bjalla/>
    færustu fagmanna og þá er ég að vísa til fjármálaráðs.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>