<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-11T16:47:45" skst="RagnaS" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 16:49:54 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T16:47:45">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Guðlaugi Þór Þórðarsyni fyrir
    seinna andsvar. Í fyrsta lagi: Tekjuskattar hafa ekki verið hækkaðir.
    Olíuverð hækkaði álíka mikið vegna Úkraínustríðsins og vegna Hormússunds.
    Það var aldrei sjálfsagt að fjármagna Grindavík með hallarekstri
    einvörðungu. Varðandi komugjöld á heilsugæslu, já, þau höfðu staðið í stað
    lengi. Það kom mér einmitt á óvart þegar ég fór sjálf á heilsugæslu
    síðasta vor að ég borgaði bara 500 kr. fyrir það. Þetta er búið að hækka í
    1.000 kr., sem er vissulega hófleg gjaldtaka, en það er áfram afsláttur
    hjá eldri borgurum og öryrkjum, þannig að þeir hópar eru varðir.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég heyri að hv. þingmaður kveinkar sér undan þessari gagnrýni sem
    kemur fram á fyrri ríkisstjórn við framlagningu þessara fjárlaga. En
    auðvitað eru þessi fjárlög ekki árás á fyrri ríkisstjórn. Við hljótum líka
    að vera sammála um að það er gott að stefna að hallaleysi. Það hlýtur að
    vera markmið okkar allra hér inni. Auðvitað getur okkur greint á um
    leiðirnar. Sjálfstæðisflokkurinn segist ekki vilja fara neinar leiðir í að
    auka tekjur. Ég hef ekki heyrt mikið af raunhæfum tillögum um hvernig eigi
    að skera meira niður. Það er auðvitað hægt að skera niður þjónustu eins og
    var gert núna í Reykjavíkurborg af meiri hluta Sjálfstæðisflokksins með
    70% hækkun á mat fyrir eldri borgara, þó að það hafi komið einhver
    afsláttur til móts við hópa með mjög lágar tekjur sem greiða 35% hærra
    gjald, sem dæmi. Það er hægt að nefna ýmis dæmi en við erum að standa vörð
    um þjónustu. Við erum að standa vörð um velferð og við erum að fjárfesta í
    innviðum og samgöngum svo um munar og í raun og veru með sögulegum hætti.
    Við erum að fjölga hjúkrunarrýmum, við erum að leysa hnúta sem voru milli
    ríkis og sveitarfélaga af einhverjum ástæðum. Við erum að auka þjónustu
    við fólkið í landinu og líka stefna að hallaleysi. Loksins.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>