<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-11T16:50:09" skst="ÓA" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 17:00:34 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T16:50:09">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Það fer að líða að lokum þessarar umræðu um
    fjárlögin. Umræðan hefur um margt verið mjög áhugaverð og upplýsandi og
    jafnvel góð á stórum köflum, ætla ég að leyfa mér að segja. Það er
    ánægjulegt að hér hafa verið gagnleg skoðanaskipti, mál krufin til mergjar
    og andstæð sjónarmið birt. Ég ætla að byrja á því, eins og ég hef gjarnan
    gert þegar við ræðum um fjárlög, að minnast á það að ríkisstjórnin fékk
    mjög gott tækifæri hér í upphafi síns ferils. Ég vil meina að
    ríkisstjórnin hafi gert mistök í því að horfa ekki til þeirra vinsælda sem
    hún hafði á þeim tíma til þess að vera með betri væntingastjórnun um
    hverju væri hægt að áorka á einum, tveimur eða þremur árum. Það er mitt
    mat að það hefði verið skynsamlegra fyrir ríkisstjórnina að fara varlega í
    allan útgjaldaauka og einbeita sér að því að ná fram sparnaði og
    hagræðingu í kerfinu. Ríkisstjórnin sem fór frá hafði í raun verið á
    þeirri vegferð að hún hafði ætlað að vaxa út úr vandanum og halda
    útgjöldum föstum en njóta hærri tekna. Ég veit ekki betur en að það hafi í
    raun gengið ágætlega. Og það gekk meira að segja svo vel að ef ég man rétt
    þá ákvað Reykjavíkurborg á sínum tíma að hafa sama háttinn á þótt það hafi
    kannski ekki gengið alveg eins vel hjá þeim. Ég verð líka að hrósa
    ríkisstjórninni á þeim tíma fyrir að hafa kallað eftir, sem mér fannst
    mjög góð hugmynd, sparnaðartillögum frá almenningi. Ég vil meina að
    ríkisstjórnin hafi fengið mjög góð svör við því og almenningur tekið sig
    til og sent inn mikið af tillögum og margar hverjar alveg ágætar. En því
    miður hefur kannski ekki sést nægilega mikið af þeim og hefði kannski mátt
    gera meira af því eins og ég er að vísa hér til. Auðvitað hefði
    útgjaldahliðin þá verið meiri á seinni tíma þessarar
    ríkisstjórnar.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Við stöndum nú frammi fyrir því að hér er að birtast hallalaust
    fjárlagafrumvarp og það er vel. Það er mikilvægt og ég held að við fögnum
    því öll. Þó að okkur greini kannski á um hvernig ríkisstjórnin ákveður að
    fara þessa vegferð þá held ég að við fögnum því öll að nú liggur fyrir að
    það eigi að reyna að ná hallalausum fjárlögum. Ég ætla að segja að það
    verður ærið verkefni. Ég hef líka ákveðnar efasemdir um að það náist og
    horfi ég þá kannski ekki síst til þess hvernig reksturinn hefur tekist til
    á því ári sem nú er að líða og ljóst að þar verður um mun meiri
    hallarekstur að ræða en við gerðum ráð fyrir í upphafi. Ég er líka ósáttur
    við það, svo að ég segi það strax, að mér finnst ríkisstjórnin að miklu
    leyti vera að senda reikninginn áfram til fólksins í landinu. Það er verið
    að hækka skatta, það er verið að hækka gjöld, jafnvel finna nýja
    gjaldstofna. Það er ekki mín skilgreining á ábyrgri fjármálastjórnun. Ég
    tel að þar eigum við í raun að hafa aga til þess að forgangsraða hlutum en
    líka átta okkur á því að ríkið á ekki að gera allt. Við eigum að einfalda
    stjórnsýsluna. Við eigum að passa upp á að skattfé sé nýtt betur og við
    verðum að muna að ríkissjóður skapar ekki verðmæti. Það er fólkið og
    fyrirtækin í landinu sem það gera. Það er mjög mikilvægt að við höfum það
    í huga.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég er þingmaður fyrir Norðvesturkjördæmi og mér finnst oft, þegar
    við ræðum fjárlög hér á þingi, þurfa að minna á hvernig verðmætin verða
    til. Þau verða m.a. til í sjávarplássum á Vesturlandi, Vestfjörðum og
    Norðurlandi vestra. Þau verða til hjá bændum og þau verða til í
    fiskvinnslunum, hjá iðnfyrirtækjunum og hjá ferðaþjónustufyrirtækjunum.
    Þau verða til hjá fólki sem fjárfestir eigin peningum, ákveður að taka
    áhættu og skapa störf. En síðan kemur ríkisvaldið og tekur sinn hlut. Því
    miður er það þannig að þegar sá hlutur dugar ekki þá virðist svar þessarar
    ríkisstjórnar oft vera að taka aðeins meira. Þarna held ég að skilji skýrt
    á milli stjórnmálastefna og ég get vel skilið að vinir mínir í Viðreisn
    eigi kannski ekki alltaf bjarta daga í þessu stjórnarsamstarfi. Við
    Sjálfstæðismenn teljum ekki að skattgreiðandinn eigi alltaf að vera fyrsti
    viðkomustaðurinn sem stjórnmálamönnum dettur í hug að leita til þegar
    ríkissjóð vantar peninga. Við eigum hins vegar að líta inn á við. Við
    eigum að velta fyrir okkur hvað ríkið getur gert betur og hvernig ríkið
    getur gert hlutina ódýrari. Við þurfum jafnvel að velta því fyrir okkur
    hvort ríkið eigi hreinlega ekki að hætta að gera ákveðna hluti og láta
    öðrum það eftir.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég verð að koma aðeins inn á samgöngur því að þar finnst mér þessi
    pólitík vera áþreifanleg fyrir okkur íbúa í Norðvesturkjördæmi. Það er
    auðvelt að sitja í ráðuneyti í Reykjavík og teikna upp nýtt kerfi,
    gjaldtöku af samgöngum. En fyrir okkur íbúa landsbyggðarinnar er
    einkabíllinn ekki munaðarvara. Hann er hluti af grunninnviðum
    samfélagsins. Fólk þarf bíl til að fara í vinnu, það er að sækja þjónustu,
    fara með börn á æfingar og sækja heilbrigðisþjónustu og fyrirtækin þurfa
    að sjálfsögðu vegakerfi til að koma framleiðslu sinni á markað og koma með
    aðföng. Þetta skiptir máli, sérstaklega fyrir okkur í Norðvesturkjördæmi
    þar sem við höfum um langa hríð þurft að glíma við erfiðar
    samgöngur.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Það hefur töluvert verið talað um hagræðingu og
    ég er mikill stuðningsmaður hagræðingar. En hagræðing og niðurskurður er
    ekki sami hluturinn. Það er mikilvægt að við munum, þegar það er ákveðið
    hér í Reykjavík að einfalda regluverk, sameina stoðþjónustu o.s.frv., að
    það getur verið hagræðing en ef þjónustan hverfur hins vegar úr
    byggðarlagi þá er ljóst að það er ekki hagræðing, það er niðurskurður. Það
    er þjónustuskerðing og þetta þurfum við að hafa í huga. Ég hlýt einnig að
    víkja að heilbrigðisþjónustunni. Ég minni á að við getum sparað ótrúlega
    mikið á pappír með því að færa þjónustuna lengra frá fólki en
    reikningurinn hverfur ekki. Hann lendir bara annars staðar, lendir t.d. á
    sjúkraflutningum, hann lendir á fjölskyldum og hann lendir á fólki sem
    þarf að taka sér frí frá vinnu til að sækja sér heilbrigðisþjónustu um
    langan veg.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Mig langar að minnast á atvinnuvegi í mínu
    kjördæmi. Mig langar til að ræða aðeins um landbúnað, sjávarútveg, iðnað
    og ferðaþjónustu. Þetta eru ekki bara skattstofnar, þetta eru undirstöður
    byggðar. Þegar kostnaður þessara atvinnugreina hækkar vegna ákvarðana
    stjórnvalda þá gerist eitthvað. Það sem gerist er að fjárfesting minnkar,
    samkeppnishæfni versnar og störfum fækkar og áhrifin birtast að lokum í
    samfélögunum. Íslenskir bændur geta ekki tekið endalaust á sig aukinn
    kostnað. Þeir geta ekki flutt framleiðsluna til annarra landa. Sama gildir
    um sjávarbyggðirnar og við höfum séð í tíð þessarar ríkisstjórnar
    skattlagningu, verulega aukna skattlagningu, á sjávarútveginn sem hefur
    slæm áhrif.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég ætla ekki að hafa þetta mikið lengra. Ég
    hlýt að óska okkur þingmönnum velgengni í því að ná að vinna þetta
    fjárlagafrumvarp eins vel og kostur er. Ég held að það sé einlæg ósk okkar
    allra að við náum að komast á þann stað hér <ns:bjalla/> að vera með
    hallalaus fjárlög. Ég er hóflega bjartsýnn á að það takist.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>