<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-11T17:00:48" skst="DBE" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 17:02:54 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T17:00:48">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég vil byrja á að þakka fyrir athyglina sem
    mér var sýnd á elleftu stundu en vildi fyrst og fremst þakka fyrir
    málefnalega nálgun og taka undir orð hv. þingmanns um að við eigum
    mikilvægt verk fyrir höndum. Okkur er þröngur stakkur sniðinn núna og
    auðvitað eru mörg vandasöm verkefni sem felast í því og ýmsar ágætar
    spurningar sem vakna við þessa yfirferð hérna í þingsalnum sem við fylgjum
    eftir inni í nefndinni. Varðandi þau orð hv. þingmanns að það væri auðvelt
    að útfæra gjaldtöku á vegum, og vísar hann þar væntanlega bæði til
    kílómetragjalda eða veggjalda tengdra við stórframkvæmdir, nú eða
    umferðar- og flýtigjalda sem hafa verið nefnd hér á höfuðborgarsvæðinu, þá
    held ég að svo sé ekki. Ég held að það sé flókið. Það skiptir mjög miklu
    máli að þetta sé gert á sanngjarnan hátt og styðji við önnur markmið sem
    við setjum okkur í umferðar- og samgöngumálum, auðvitað að fá og flýta
    stórum framkvæmdum en líka þannig að byrðunum, ef við orðum það bara
    þannig, sé sanngjarnt skipt.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég bregst aðallega við orðum þingmannsins því að stundum má í
    þessum sal heyra eins og þetta séu einhverjar nýjar hugmyndir sem ný
    ríkisstjórn hafi komið með. En staðreyndin er sú að þetta hefur staðið til
    mjög lengi, bæði í tengslum við samgöngusáttmálann og líka í tengslum við
    samvinnuverkefni, sem voru sex skilgreind verkefni á landinu, og
    kílómetragjöld hafa verið á dagskrá í fjármálaáætlun árum saman, frá alla
    vega síðustu ríkisstjórn, ef ekki tveimur síðustu. Flækjustigið við að
    gera þetta, eða kjarkurinn öllu heldur sem þarf til, endurspeglast í því
    að þetta var ekki útfært þó að þetta stæði til og væri býsna nálægt í
    tíma.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>