<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-11T17:03:03" skst="ÓA" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 17:05:20 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T17:03:03">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Degi B. Eggertssyni fyrir gott
    andsvar. Það sem ég átti við með því að það væri einfalt að setja á gjöld
    var að oft eru þeir sem setja gjöldin á ekkert endilega að glíma við þau
    sjálfir. Það er það sem ég átti við í raun. Það kemur ágætlega á vondan að
    við sem búum á suðurhluta Vesturlands þekkjum ágætlega gjaldtöku fyrir
    notkun á vegum og auðvitað skiptir máli að það sé útfært með réttum hætti.
    Ég er sammála hv. þingmanni um að það skipti máli að horfa til margra
    þátta. Ég nefni bara t.d. samkeppnishæfni þeirra fyrirtækja sem ákveða að
    setja sig niður þar sem þú býrð mögulega við aukna gjaldheimtu o.s.frv.
    Það skiptir auðvitað máli.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Varðandi kílómetragjaldið þá held ég að hugmyndin hafi í raun
    kannski ekki verið galin og í rauninni kannski bara góð. Auðvitað stóðu
    menn frammi fyrir því að hér var vaxandi hluti bílaflotans sem ekki tók
    þátt í að leggja til fjármuni til uppbyggingar vega, rafmagnsbílarnir, og
    því varð að fara ákveðna leið í þeim efnum. Ef maður horfir á tæknina voru
    menn auðvitað að gæla við að hægt væri að búa þannig um hnútana að
    gjaldtaka yrði einföld og það væri þá hægt að setja þetta saman með þeim
    hætti að þeir borgi sem nýta. Ég held að það sé í rauninni í grunninn ekki
    slæm hugmynd og jafnvel bara góð. Síðan hefur komið í ljós að við vorum
    frumkvöðlar í þeim efnum, sem hefur þýtt að við erum að glíma við alls
    konar vandamál, og kannski það hafi sett óþarflega dökkan blett á þetta.
    Kannski sjáum við til lengri framtíðar að þetta eigi mögulega eftir að
    hjálpa okkur. En ég vil meina að freistnivandinn sé ótvírætt fyrir hendi,
    að það er svo einfalt <ns:bjalla/> að auka gjaldheimtu í tengslum við
    kílómetragjaldið. Ég óttast að það verði of mikil freisting fyrir marga
    stjórnmálamenn.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>