<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-11T17:05:26" skst="DBE" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 17:07:31 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T17:05:26">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég vil þakka fyrir málefnalegt andsvar og gott
    samtal um þetta. Ég sé það að vera framarlega í þessu svipað og það að við
    vorum, kannski ásamt Dönum og Hollendingum, býsna framarlega í að koma upp
    söfnunarkerfi í lífeyrisréttindum. Ég held að þetta sé í raun vandamál sem
    alla vega OECD bendir á að sé við lýði víða, bæði austan hafs og vestan,
    að innviðir eru úr sér gengnir, það er gríðarleg innviðaskuld, bæði í
    Bandaríkjunum og alla vega sums staðar í Evrópu, og hefur verið hér.
    Metnaður samfélagsins og kröfur, bæði almennings — við getum kallað það
    kjósenda — og líka stjórnmálamanna, eru að vegirnir séu betri, brýrnar séu
    fleiri, ferðatíminn styttri og umferðaröryggið betra, og þetta kostar.
    Bílarnir hafa á sama tíma orðið sparneytnari og því fögnum við en þar með
    hefur gengið á þennan tekjustofn sem var notaður til þess að halda í
    horfinu en dugði samt ekki til, og æ minna, eins og hefur verið bent á við
    framlagningu fjármálaáætlunar árum saman og það var iðulega langur tími
    sem fyrrverandi formaður Sjálfstæðisflokksins tók í þetta á hverjum
    blaðamannafundi á hverju ári til að koma þessum skilningi út meðal
    þjóðarinnar. Ég held að það hafi bara verið heilbrigt og sannfærði marga
    um að þetta viðfangsefni færi ekkert frá okkur ef við ætluðum að auka
    viðhald og bæta í stofnframkvæmdir og innviðaframkvæmdir. Til þess er
    þessi gjaldheimta. Auðvitað þarf hún að standa lengi eins og
    framkvæmdirnar og þess vegna er ábyrgð okkar mikil að ná sæmilegri sátt um
    hvernig við útfærum þetta. Til þess erum við hérna.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>