<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-11T17:07:38" skst="ÓA" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 17:09:44 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T17:07:38">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Degi B. Eggertssyni fyrir annað
    gott andsvar og tek undir með honum að það er auðvitað mikilvægt að menn
    vandi sig þegar verið er að setja upp svona kerfi. Það er algerlega
    augljóst í mínum huga að það að setja á skattheimtu tryggir auðvitað ekki
    endilega að innviðir batni. Það er lykilatriði að við notum þessa
    skattheimtu til að bæta innviðina og auðvitað er skattheimta af ökutækjum
    hugsuð í rauninni sem miklu meira en bara til að standa undir innviðum í
    samgöngum. Það er líka verið að nota þann skattstofn til þess að ríkið
    geti sinnt öðrum verkum en þeim. Það verður auðvitað áskorun fyrir okkur
    meðan við erum svona fá og landið jafn stórt og það er og jafnvel erfitt
    að halda vegi. Þá verður þetta okkur alltaf kostnaðarsamt.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég held hins vegar að við eigum að setja okkur kannski raunhæf
    markmið í þessum efnum. Gjaldtaka þarf að vera hófleg og skynsamleg og við
    sjáum bara hvað hefur gerst, t.d. í hluta af ferðaþjónustunni. Ef ekki er
    reynt að hafa stjórn á galskapnum geta hlutir farið út í að þetta verði
    hálfgert villta vestur og þar viljum við ekki vera. En verkefnið, eins og
    ég nefndi, hjá okkur núna er að vinna með þessi fjárlög og reyna að gera
    þau sem best úr garði og við Sjálfstæðismenn munum alveg örugglega leggja
    okkar af mörkum í að bæta það frumvarp.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>