<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-11T17:09:52" skst="BergÓ" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 17:20:07 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T17:09:52">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Senn líður að lokum þessarar 1. umræðu um
    fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar fyrir árið 2027. Það er nú eitt og
    annað ágætt sem hefur komið hér fram í umræðunni, sérstaklega sú gagnrýni
    sem félagar mínir í stjórnarandstöðunni hafa viðhaft hér á þessa
    linnulausu sókn ríkisstjórnarinnar í veski heimila og fyrirtækja. Það er
    mikilvægt og nauðsynlegt markmið, þegar horft er til lengri tíma, yfir
    lengra tímabil, að hafa það að markmiði að hafa ríkissjóð hallalausan og
    helst með ágætum afgangi. En það er engin sérstök efnahagsleg snilld að
    skila hallalausum fjárlögum ef menn líta svo á að hægt sé að sækja það sem
    upp á vantar í vasa skattgreiðenda án þess að það hafi nein áhrif. Í
    umræðunni hér hefur það verið talin sérstök réttlæting á þessari framgöngu
    ríkisstjórnarinnar, undir forystu hæstv. fjármálaráðherra, sem er kominn
    hér í salinn, og ég þakka honum fyrir það, að nú sé verið að klára þá
    vegferð sem hófst í fyrra til að ná niður halla á ríkissjóði.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Hv. þingflokksformaður Samfylkingarinnar, Guðmundur Ari
    Sigurjónsson, sagði hér áðan að hallinn hefði verið „halveraður“ í fyrra
    og nú væri verið að klára verkið. En hvað blasir við okkur núna? Það sem
    átti að vera 28 milljarða kr. halli í fyrra, samkvæmt fjárlögum
    yfirstandandi árs, stefnir í 67,5 milljarða kr. Þetta er hartnær þrefalt
    hærri tala en lagt var upp með. Trúir því einhver raunverulega að þessi
    áform ríkisstjórnarinnar, sem lögð eru fram í þessu fjárlagafrumvarpi,
    haldi? Við sem erum hér inni þekkjum mörg a.m.k. með hvaða hætti menn
    settu kíkinn fyrir blinda augað hvað undirliggjandi spár varðar. Ég hvet
    hv. fjárlaganefnd til að skoða þetta allt af skynsemi og yfirvegun. Það er
    alveg ofboðslegt högg sem ferðaþjónustan fær í þessu frumvarpi og fleiri
    eru undir. Við horfum annað árið í röð á gríðarlega miklar skattahækkanir
    sem munu hafa afleidd áhrif og það getur ekkert annað gerst. En það sem
    mér hefur þótt verst er það sem birtist mér sem eitthvert
    allsherjarskilningsleysi á áhrifum þessara skattaaðgerða. Ég vona að hv.
    fjárlaganefnd líti til þess að reyna frekar að stækka kökuna en að skera
    sneiðarnar þynnri en nú er hægt að gera.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Við horfum svo á aðhaldshlutann, þessa 44 milljarða sem mér sýnist
    að drjúgum hluta vera samansafn af óráðstöfuðum útgjaldaheimildum fyrri
    tíðar. Það er ekki raunverulegt aðhald með tilliti til þess
    verðbólguþrýstings sem er í samfélaginu og þeirra áhrifa sem
    ríkisfjármálin hafa á verðbólguvæntingar, verðbólguþrýsting, verðbólgu og
    síðan vexti. Ég hvet virðulega ríkisstjórn, hæstv. fjármálaráðherra og
    fjárlaganefndina sérstaklega til að skoða hvort ekki séu forsendur til að
    sníða stakkinn aðeins þrengri hvað útgjaldahlið frumvarpsins varðar í stað
    þess að sækja sífellt meira fram á tekjuhliðinni með hækkuðum sköttum og
    hækkuðum gjöldum. Það skiptir engu máli þó að menn sveifli einhverjum
    orðaleppum og kalli hlutina öðrum nöfnum en gjalda- og skattahækkanir.
    Raunveruleikinn verður alltaf sá sami. Þetta eru bara gjalda- og
    skattahækkanir sem þessi stjórn virðist vera algerlega óseðjandi
    gagnvart.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Það var áhugavert hér áðan að hv. þm. Guðmundur Ari Sigurjónsson,
    þingflokksformaður Samfylkingarinnar, virtist nefna að verið væri að ræða
    5,2% hækkun krónutölugjalda við aðila vinnumarkaðarins. Mér heyrist nú að
    slík samtöl séu varla komin af stað ef mark er takandi á Vilhjálmi
    Birgissyni, formanni Starfsgreinasambandsins, og Finnbirni Hermannssyni,
    forseta ASÍ, sem lýstu því mjög skýrt í fyrradag. Ef verið er að ræða 5,2%
    hækkun krónutölugjalda við aðila vinnumarkaðarins er afgangurinn auðvitað
    farinn fljótt, að minnsta kosti stór hluti af honum, ef hvikað verður frá
    þeirri tölu. Það er þess vegna sem ég vil segja og skilja það hér eftir að
    hv. fjárlaganefnd hafi ekki það eina markmið, og þá er ég sérstaklega að
    tala til fulltrúa ríkisstjórnarflokkanna þar inni, að skila hallalausum
    fjárlögum því að það er svo margt annað sem skiptir máli. Eins og
    Seðlabankinn hefur sagt mjög skýrt skiptir ekki síður máli, hvað
    verðbólguþrýsting varðar, að ríkissjóður kunni sér hóf á útgjaldahliðinni,
    að þrýstingurinn sé ekki linnulaus úr þeirri áttinni. Ég hef gagnrýnt þann
    misskilning, sem ég tel vera, hæstv. fjármálaráðherra, að peningar sem
    ríkissjóður tekur til sín dragi sjálfkrafa úr neyslu og þenslu í
    samfélaginu. Það atvikast ekki þannig ef ríkissjóður ráðstafar þessum
    peningum, á köflum í einhverja vitleysu, en í öllu falli ráðstafar þessum
    peningum og setur þar með þrýsting á verðbólgu í samfélaginu. Það er
    ekkert betra að ríkissjóður eyði tiltekinni krónu en einhver húsmóðir
    vestur í bæ eða fyrirtæki sem er þó að reyna að skapa arðsaman
    rekstur.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Það styttist svo um tímann að ég ætla að sleppa hér nokkrum
    punktum og eiga þá inni til síðari nota. Það er eitt atriði sem er
    eiginlega meira pólitísks eðlis en tæknilegs þó að það sé tæknilegt líka.
    Á bls. 125 og 126 í fjárlagafrumvarpinu er fjallað um svokallaða
    skattastyrki. Ég hef komið inn á þetta áður hér í ræðum og það er einhver
    ónotaleg tilfinning sem skín þarna í gegn. Það er eins og þeir sem skrifa
    þennan texta og setja þetta inn í fjárlagafrumvarpið, sem fjármálaráðherra
    ber auðvitað ábyrgð á, líti svo á að ríkissjóður eigi þetta í raun allt
    saman og leyfi síðan af einhverri mildi heimilum og fyrirtækjum að halda
    eftir einhverjum krónum. Sú útfærsla sem er teiknuð upp á bls. 125 og 126,
    þar sem skattastyrkirnir eru rammaðir inn, er með allt öðrum hætti en lög
    um opinber fjármál útskýra og leggja upp, þ.e. sú nálgun er
    skattastyrkirnir ná utan um. Það segir beinlínis um skattastyrki í 14.
    tölulið 3. gr. laga um opinber fjármál, í orðskýringum, með leyfi forseta:
    „Eftirgjöf á skattkröfu á hendur skattgreiðanda vegna sérstakra aðstæðna
    eða atvika.“ Þetta á auðvitað ekki við um samanburð á 24%
    virðisaukaskattsþrepinu og 11% virðisaukaskattsþrepinu. Þau eru bæði
    tilgreind í lögum og gert ráð fyrir því að þau séu eins og þau eru. Þetta
    er einhver misskilningur og hann er ónotalegur af því að hann skilur eftir
    þá tilfinningu að þeir sem höndla með það plagg sem hér er rætt líti
    raunverulega svo á að ríkissjóður eigi þetta allt saman.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég vil því óska eftir því að fjárlaganefnd taki þetta til
    sérstakrar skoðunar og geri eftir atvikum grein fyrir þessu í nefndaráliti
    sínu þar sem þessi atriði verða leidd fram með þeim hætti sem lög um
    opinber fjármál útlista en ekki sem einhver seinni tíma þróun, væntanlega
    á einhverjum hugðarefnum starfsmanna í fjármálaráðuneytinu. Ég get ekki
    ímyndað mér að hæstv. ráðherra hafi verið að vasast í þessu sjálfur. En
    það breytir því ekki að þau skilaboð sem hér eru send eru algerlega ótæk
    og sérstaklega hjá ríkisstjórn sem gengur jafn hratt um gleðinnar dyr og
    raunin er hvað hækkun skatta og gjalda varðar. Það setur að manni ugg ef
    það er raunveruleg afstaða hæstv. fjármálaráðherra að allt það sem er í
    neðra virðisaukaskattsþrepi sé skattastyrkur. Það er ekki þannig. Og nú
    koma menn fram með þau rök gagnvart baðlónaskattinum að það sé bara verið
    að færa á milli þrepa, upp í eðlilega þrepið. Nei, nei, baðlónin eru bara
    í þrepinu sem þau áttu að vera í. Það var ákvörðunin á sínum tíma. Hvað er
    þá virðisaukaskattur á matvöru? Er hann skattastyrkur til fjölskyldna
    landsins? Þetta er einhver della. Ég vil bara óska eftir því hér við lok
    þessarar ræðu minnar að þetta verði skoðað sérstaklega í nefndinni. Það er
    ekki ásættanlegt að þetta standi með þessum hætti í fjárlögum verði þau
    samþykkt í meginatriðum eins og þau liggja hér fyrir.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>