<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="fjmrh." frhr="0" id="r2026-09-11T17:20:31" skst="DMK" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 17:26:06 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T17:20:31">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Forseti. Umræðan sem hér hefur farið fram er gagnleg. Hún sýnir
    vel um hvað við erum sammála og um hvað við erum minna sammála. Ég held að
    við getum flest verið sammála um markmið þessara fjárlaga, að ríkissjóður
    verði rekinn með ábyrgum hætti, að hallarekstri verði hætt og að
    ríkisfjármálin styðji við stöðugleika, lægri vexti og lægri verðbólgu.
    Ágreiningurinn virðist frekar snúast um hvernig best er að ná þessu
    markmiði og hvað sé raunhæft. Sumir ræðumenn hafa bent á að afgangurinn
    sem gert er ráð fyrir fyrir árið 2027 sé ekki mikill. Það er rétt. 5
    milljarðar eru ekki mikið í stóra samhenginu. Tímamótin felast ekki í því
    hverju upphæðin er heldur því að mínus verði snúið í plús. Stóru tíðindin
    eru þau að hallarekstri ríkissjóðs sem hefur staðið árum saman verður
    hætt. Við erum að ná jafnvægi og skapa forsendur til þess að búa í haginn
    til frekari sóknar og bæta áfallaþol.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Í þessari umræðu hefur verið vísað til þess að afkoma ársins 2026
    hafi orðið lakari en ráð var gert fyrir. Það er rétt og stærsta skýringin
    á því er í aðalatriðum einföld. Ríkissjóður er ekki í halla árið 2026
    vegna þess að skatttekjur standi ekki undir almennum rekstri ríkisins,
    þvert á móti. Frumjöfnuður er verulega jákvæður. Vandinn er fyrst og
    fremst vaxtabyrði sem byggst hefur upp vegna skulda og verður æ þyngri
    þegar verðbólga og vextir eru hærri en gert var ráð fyrir. Þá er
    framúrkeyrsla á fjárlagaliðum þar sem eftirspurn ræður kostnaði,
    eftirspurn sem erfitt getur verið að sjá fyrir. Eftirlit með framkvæmd
    fjárlaga verður styrkt og við erum að bæta aðferðir til að meta útgjöld og
    fylgja þeim eftir. Það er einmitt það sem ábyrg fjármálastjórn felur í
    sér. Ég hef nefnt það í þessari umræðu og vil ítreka það að ég tel einnig
    að hér hafi hv. fjárlaganefnd mikilvægu hlutverki að gegna og ætti að auka
    þann þátt í störfum sínum. Undir þetta hafa sumir hv. þingmenn einnig
    tekið.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Forseti. Mér hefur verið tíðrætt um aðhald. Í frumvarpinu eru
    ráðstafanir sem draga úr útgjaldavexti um 44 milljarða kr. með markvissri
    blöndu aðgerða, almennu aðhaldi, fækkun stöðugilda, endurmati fjárheimilda
    og ýmsum sértækum ráðstöfunum. Með þessu móti náum við að halda hækkun
    heildarútgjalda ríkissjóðs, þegar búið er að taka tillit til launa,
    verðlags og gengisbreytinga, nálægt 1,2%. Það er umtalsvert aðhald. Þrátt
    fyrir aðhald beinum við fjármunum í arðbærar fjárfestingar, ekki síst í
    samgöngumálum og í heilbrigðismálum. Við drögum ekkert úr framkvæmdahraða
    byggingar nýs Landspítala og ekki úr skuldbindingum okkar samkvæmt
    samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins. Það má deila um hvernig eigi að
    beita aðhaldi. Það má spyrja hvort ganga eigi lengra á einum stað eða
    skemur á öðrum. Það er eðlileg pólitísk umræða. Það gengur hins vegar ekki
    að segja samtímis að aðhaldið sé of lítið og ekki megi hækka tekjur
    ríkissjóðs eða auka útgjöld í öllum helstu málaflokkum. Þeir sem segjast
    geta gert betur en lagt er til í þessu frumvarpi verða að svara því hvaða
    leiðir þeir vilji fara. Vilja menn sjá meiri halla? Vilja menn að
    ríkissjóður taki meira að láni? Vilja menn lækka útgjöld meira og hvar á
    þá að gera það?</ns:mgr>

    <ns:mgr>Forseti. Sú leið sem ríkisstjórnin hefur valið að fara er
    skynsamleg og ábyrg leið. Hún er ekki auðveld en hún er samt vel fær og
    mun skila góðum árangri. Við erum í hagkerfi þar sem verðbólga er of mikil
    og vextir of háir. Þá skiptir máli að ríkissjóður leggist ekki á sveif með
    eftirspurninni og keppi ekki við heimili og fyrirtæki um fjármagn. Aðhald
    ríkisfjármála er framlag ríkisstjórnarinnar til að skapa skilyrði fyrir
    lægri verðbólgu og lægri vöxtum. Það er það sem skiptir heimilin og
    fyrirtækin í landinu langmestu máli.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Forseti. Þessi fjárlög eru ekki hafin yfir gagnrýni. Engin fjárlög
    eru það. Það er óvissa um marga hluti sem við ráðum illa við. Þess vegna
    er mikilvægasta verkefnið að reka ríkissjóð þannig að hann standi sterkari
    þegar eitthvað bregður út af. Það gerum við með því að stöðva
    hallareksturinn, halda aftur af útgjaldavexti og með því að fara betur með
    opinbert fé og með því skapa forsendur til þess að skuldir, verðbólga og
    vextir geti lækkað. Það er meginverkefni þessara fjárlaga.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>