<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-11T17:26:32" skst="GÞÞ" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 17:37:01 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T17:26:32">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Nú líður að lokum þessarar umræðu. Hún hefur í
    sjálfu sér verið ágæt en við eigum auðvitað eftir að ræða þetta meira í
    nefndum, fá umsagnir og vinna með málið. En ég held að það sé mjög
    mikilvægt í umræðunni, ef við ætlum að ná niðurstöðu sem er góð fyrir
    þjóðina, að menn tali út frá staðreyndum. Sumt er að lagast í umræðunni.
    Menn eru alla vega komnir á þann stað að það er enginn að fullyrða það
    lengur að hér hafi verið tekið við einhverjum brunarústum.
    Alþjóðastofnanir, fjármálaráð og hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra hafa
    margoft bent á að svo er ekki. Mér finnst hins vegar dapurt að þurfa að
    leiðrétta það aftur og aftur þegar stjórnarliðar, og jafnvel hæstv.
    ráðherrar, koma hér og tala um þann halla sem þeir taka við og eru reyndar
    búnir að bæta mjög í sjálfir, eins og þetta hafi bara verið vegna þess að
    fólk hafi ekki nennt að vinna vinnuna sína. Ég fór að hugsa út af þessum
    orðaskiptunum áðan: Hvernig var þetta? Ég var hér þegar Covid var og ætla
    að segja ykkur eitt, ykkur sem á þetta hlustið og virðulegum forseta. Ég
    skal segja ykkur það að þetta var góður tími á Alþingi Íslendinga. Þrátt
    fyrir að hér væri fólk úr mismunandi flokkum með ólíkar lífsskoðanir og
    alla jafna ósammála um margt þá var samstaða í salnum og góð samstaða um
    að bregðast við hinum erfiðustu aðstæðum sem upp hafa komið. Það sama átti
    við um Reykjaneselda. Það er ekki stórmannlegt að reyna síðan núna að gera
    þetta tortryggilegt og láta að því liggja að hér hafi verið stjórnvöld sem
    hafi verið svo ábyrgðarlaus að safnast hafi saman halli upp á 600
    milljarða kr. Covid er það næsta sem við Íslendingar höfum upplifað sem
    stríðsástand. Það var með ólíkindum að upplifa þetta úr stóli ráðherra þar
    sem landið var að lokast. Við þurftum að berjast fyrir lyfjum og
    lækningavörum og við þurftum að fara í aðgerðir til að halda
    efnahagslífinu gangandi því að öllu óbreyttu, með þeim aðgerðum sem þá var
    farið í út af heimsfaraldrinum, þá hefði allt saman farið í
    fjöldagjaldþrot og fjöldaatvinnuleysi. Mér finnst það einfaldlega fyrir
    neðan allar hellur að ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur og hennar
    stuðningsmenn séu að nota þetta ástand til að afsaka eigin gerðir eða
    aðgerðaleysi. Mér finnst það bara fyrir neðan allar hellur.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Mér finnst það líka ekki gott þegar hæstv. ráðherra, sem segir
    margt gott, fer t.d. yfir það núna af hverju framkvæmd fjárlaga hafi ekki
    gengið eins og vonir stóðu til. Hæstv. ráðherra sagði það sem og
    ríkisstjórnin að nú væru breyttir tímar. Agi væri kominn í reksturinn og
    nú væri hér ríkisstjórn sem kynni til verka. Af hverju var tvöfalt meiri
    halli en menn ætluðu? Það var vissulega út af fjármagnskostnaði, frávikin
    voru upp á 24 milljarða; sjúkrahúsþjónustan með frávik upp á 10 milljarða,
    heilbrigðisþjónusta utan sjúkrahúsa með 5,6 milljarða, lyf og
    lækningavörur upp á 5,5 milljarða, málefni aldraðra upp á 4,7 milljarða,
    fjölskyldumál upp á 4,5 milljarða, örorka og málefni fatlaðs fólks með 2,8
    milljarða, orkumál með 1,9 milljarða, réttindi einstaklinga og
    dómsmálastjórnsýsla með 1,6 milljarða og hjúkrunar- og
    endurhæfingarþjónusta með 1,5 milljarða — allt saman mikilvægir
    málaflokkar en þú þarft að halda aga í öllum ríkisfjármálunum ef þú ætlar
    að ná árangri. Það er ekki rétt, eins og hæstv. fjármálaráðherra hefur
    látið að liggja, að þetta sé bara kostnaður út af auknum
    fjármagnskostnaði. Það er einfaldlega ekki rétt. Reyndar voru það auknar
    tekjur líka þó að það hafi ekki verið sambærilegt við það. Nú erum við á
    þeim stað, eins og hæstv. ráðherra vísar til, að það er samstaða um
    markmiðið. Það er vegna þess að við erum löngu komin á þann stað að við
    eigum að geta snúið við blaðinu og náð hallalausum fjárlögum og farið að
    búa okkur undir þau áföll sem verða í framtíðinni því að það verða alltaf
    áföll. Það er enginn stjórnmálamaður eða einstaklingur sem getur lofað því
    að svo verði ekki.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég ætla ekki að fara í einstaka þætti. Eftir að hafa aðeins komið
    að þessum málum ætla ég að segja hverjir ég held að hafi verið stærstu
    veikleikarnir, ekki bara í þessum fjárlögum heldur þegar kemur að
    framkvæmd opinberra fjármála í tíð þessarar ríkisstjórnar. Ég tel það hafa
    verið gríðarlega stór mistök að fara ekki eftir lögum um opinber fjármál
    þegar þessi ríkisstjórn tók við. Það voru gríðarlega mikil mistök að vera
    fyrsta ríkisstjórnin sem gerði það ekki. Hér hefði, eins og lög gera ráð
    fyrir, átt að leggja fram fjármálastefnu og ræða hana þar sem við værum að
    ræða stóru áskoranirnar. Ég nefni sem dæmi mannfjöldaþróunina. Þjóðin er
    að eldast og það eru tifandi tímasprengjur, ekki bara í þessum fjárlögum
    heldur í fjármálaáætluninni, þegar kemur að þessu máli. Það átti að leggja
    fram fjármálastefnu, það átti að fá umsagnir um hana, það átti að ræða
    hana, það átti að samþykkja hana og síðan átti að byggja fjármálaáætlun á
    þeirri fjármálastefnu. Það er það sem átti að gera. Það er það sem
    ríkisstjórnin sagðist ætla að gera í janúar en ákvað síðan að skella því
    fram á sama tíma og fjármálaáætlun þannig að engin umræða fór fram um
    fjármálastefnuna. Af hverju eru þessar reglur sem hljóma tæknilegar? Það
    var þverpólitísk samstaða um að fara í þetta verklag vegna þess að við
    vildum læra af þeim sem gerðu best. Og hér var hlustað á ráðleggingar sem
    fengnar voru frá alþjóðastofnunum. Þingnefndir fóru til annarra landa til
    að fá sínar bestu upplýsingar en því miður erum við komin áratugi aftur í
    tímann þegar kemur að vinnubrögðum um opinber fjármál. Og það sést,
    virðulegi forseti, þegar við skoðum þessi fjárlög og fjármálaáætlunina sem
    fékk mjög harða gagnrýni frá faglegu fjármálaráði. Fjármálaráð er ekki
    pólitískt, það er faglegt og það skilaði gríðarlega alvarlegum
    athugasemdum sem ekkert var gert með og fjármálaáætlunin var ekki einu
    sinni uppfærð.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Það er þess vegna sem ég segi, virðulegi forseti, að ég hafi
    áhyggjur af því að ríkisstjórnin sé búin að gefast upp á þessu verkefni.
    Þetta er ekki flókið mál en þetta eru erfið mál. Það er erfitt að vera í
    ríkisstjórn en það er hins vegar mjög eftirsóknarvert því að það er gott
    að geta látið gott af sér leiða fyrir land og þjóð. Það er alveg rétt að
    það verður að taka erfiðar ákvarðanir en það verður að gera það út frá
    bestu mögulegu upplýsingum. Það hefur ekkert breyst frá því að fjármálaráð
    gagnrýndi fjármálaáætlunina. Það hefur ekkert breyst hvað það varðar að
    þeir veikleikar sem þar voru dregnir fram eru enn til staðar. Það eru of
    bjartsýnar áætlanir. Við erum að safna skuldum og þessi afgangur, við
    vitum það öll, mun ekki ganga eftir. Ef við samþykkjum þessi fjárlög núna
    þá verða ekki hallalaus fjárlög árið 2027. Það er hundrað prósent. Við
    erum ósammála í stjórnmálum. Mér finnst það líka vont að höfuðsyndin öfund
    sé orðin að rökum fyrir öllum tekjuáætlunum ríkisstjórnarinnar. Í hvert
    skipti sem þau hækka skatta, sem er þvert á það sem þau lögðu af stað með
    og lofuðu, er reynt að gera út á slíkar tilfinningar. Í staðinn fyrir að
    reyna að meta það hvaða áhrif þessar skattahækkanir hafa á viðkomandi
    atvinnugreinar, á heimilin í landinu, á barnafjölskyldurnar, er alltaf
    reynt að láta að því liggja að þarna séu fyrirtæki og þarna sé fólk sem
    geti bara borgað meira. Það hafi það bara alveg nógu gott, það geti bara
    borgað meira. En skattkerfið getur ekki gengið út á það. Skattkerfi er
    náttúrlega til að fjármagna þá þjónustu sem við erum sammála um að við
    viljum hafa. En sömuleiðis verður skattkerfið að vera þannig að það sé með
    réttu hvatana. Það er orðið áhyggjuefni að við erum með hvata sem draga úr
    dugnaði og eru ekki hvetjandi til þess að fólk leggi mikið á sig og þá er
    ég að vísa til launaskatta og ýmissa annarra bóta sem reyndar hafa verið
    gerðar breytingar á til hins verra, eins og fjármálaráð hefur bent á. Það
    hefur bent á að núna séu fjármálin í auknum mæli að verða ósjálfbær út af
    breytingum ríkisstjórnarinnar sem við höfum ekkert rætt hér og ekki var
    með neinu móti komið til móts við þegar fjármálaráð lagði það fram í sinni
    álitsgerð.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegur forseti. <ns:bjalla/> Við skulum vera bjartsýn. Við
    skulum vona að umræðan í þinginu og vinnan í þinginu verði til þess að
    breyta og bæta. Við Sjálfstæðismenn erum svo sannarlega tilbúnir í þá
    vinnu <ns:bjalla/> því að það er ljóst að það verður að gera gríðarlega
    miklar breytingar á þessu frumvarpi ef vel á að vera.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>