<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-11T17:37:16" skst="DBE" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 17:47:21 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T17:37:16">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég vil taka undir þakkir fyrir umræðuna sem
    hefur verið býsna málefnaleg og gefist færi til að fara bæði yfir
    fjárlögin almennt og líka yfir málaflokka einstakra ráðuneyta. Eins og ég
    sagði í minni fyrri ræðu og margir hafa komið inn á hér eru stóru tíðindin
    að mörgu leyti þau að það er verið að leggja fram hallalaus fjárlög í
    fyrsta skipti síðan 2019. Það sem ég rakti í ræðu minni er að, ólíkt því
    sem stundum heyrist í umræðunni, umsvif ríkisins og fjármál ríkisins eru
    ekki alltaf að þenjast út heldur erum við þvert á móti komin niður á
    svipað hlutfall af landsframleiðslu nú og við vorum fyrir 2019 og höfum
    verið nokkurn veginn að meðaltali undanfarna áratugi.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Við erum á undan áætlun með hallalaus fjárlög og það er eitthvað
    sem við getum verið stolt af. Það sýnir ákveðna staðfestu og sendir skýr
    skilaboð, en ég held að það sé mjög mikilvægt að halda því til haga að
    þegar við horfum til fjármálareglnanna sem Alþingi setti og
    stöðugleikareglunnar, sem okkur finnst skynsamlegt að fylgja, þá erum við
    í rauninni ekki að fullnýta svigrúmið til raunhækkunar útgjalda sem í
    henni felst. Hún talar um að á hverju ári sé hægt að hækka útgjöld að
    raunvirði um 2%. Nú eru þau að lækka um 1,1% þannig að svigrúmið sem til
    staðar er miðað við stöðugleikaregluna er í kringum 40 milljarðar kr. Það
    er pólitísk forgangsröðun til þess að ríkið geri sitt til að minnka
    verðbólgu og verðbólguvæntingar sem skiptir verulegu máli fyrir heimili og
    fyrirtæki en auðvitað ríkið líka. Ég tók sem dæmi að ef við værum á
    evruvöxtum, ekki einhverjum evruvöxtum úti í heimi heldur bara
    evruvöxtunum sem ríkið sjálft fékk í útboði skuldabréfa síðastliðið vor, í
    samanburði við kjörin sem reiknast á markaði í þessari viku, hefðum við
    112 milljarða meira til skiptanna í fjárlögum bara í lægri vaxtakostnaði
    vegna þeirra lána sem ríkið ber. Gríðarstórar tölur í öllu samhengi þeirra
    breytinga sem verið er að gera. Mjög mikið púður hefur farið í
    tekjubreytingar og tekjutilfærslur, ýmist í sköttum eða gjöldum, og það er
    bara eðlilegt. Ég á von á því að allur mánudagurinn fari í það líka vegna
    þess að þær breytingar eru útlistaðar í svokölluðum bandormi sem verður þá
    á dagskrá.</ns:mgr>

    <ns:mgr>En mig langaði í þessari seinni ræðu að við munum samt eftir stóru
    myndinni. Ef við horfum á heildarskatta á Íslandi og berum saman við OECD
    þá getum við sagt að við séum háskattaland, eða hvað? Við erum með rúmlega
    36% af landsframleiðslu sem við innheimtum í skatta. Það er um 2% yfir
    meðaltali OECD og hér er ég að miða við niðurstöðusamtölu sem er frá 2024.
    En ef við horfum hins vegar til Norðurlandanna þá erum við lægri en þau
    miðað við þjóðarframleiðslu, umtalsvert lægri í sumum tilvikum. Ég held að
    það sé sammæli meira eða minna allra hér í þessum sal að við erum og
    viljum vera norrænt velferðarríki þannig að við þurfum að taka það inn í
    myndina þegar við erum að ræða opinber fjármál og horfa fram á veginn hvar
    eðlilegt sé að þetta liggi. Þessi samanburður er raunar, og ég vil alveg
    nefna það, aðeins flókinn vegna þess að lífeyrisgreiðslur og
    skuldbindingar fléttast inn í þessa innheimtu skatta í ýmsum löndum,
    stundum mjög mikið, stundum minna, og það væri alveg þess virði að
    fjárlaganefnd myndi koma þessum samanburði á hreint því ef maður borar sig
    aðeins meira ofan í þetta er stóra myndin sú að skattar á einstaklinga eru
    hlutfallslega heldur hærri á Íslandi en annars staðar en skattar á
    fyrirtæki eru heldur minni. Samtök atvinnulífsins hafa lengi haldið á
    lofti samanburði þar sem skattar á fyrirtæki sýnast háir á Íslandi og eru
    þar búin að taka til hliðar ýmsar færslur sem tengjast
    lífeyrisskuldbindingum í öðrum löndum. En ég er ekki viss um að sá
    samanburður sé heldur sá rétti. Og til þess að við séum ekki að rífast um
    staðreyndir þá þyrfti eiginlega að hafa þessa heildarmynd sæmilega skýra
    því að við getum ekki gefið væntingar um að við séum og ætlum að vera
    norrænt velferðarsamfélag ef við erum ekki að tryggja fjármagn til þess að
    raunverulega vera það, sérstaklega þegar til framtíðar er litið.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég nefndi í minni fyrri ræðu t.d. tvo málaflokka sem kalla á
    breytingar, þ.e. breytt lýðfræði en líka aukin útgjöld til varnartengdra
    mála, bara svo dæmi sé nefnt. Fleira mætti nefna. Í þessum umræðum hér
    hefur fjárlaganefnd verið nestuð mjög ríkulega. Áhyggjur hafa verið
    áberandi, bæði af gjöldum og sköttum en líka af aðhaldi og aðhaldskröfum á
    ýmsa málaflokka. Eitt af því sem hefur borið hæst eru krónutölugjöldin og
    það hvort að ríkissjóður og Alþingi væri að senda óvarleg skilaboð út í
    kjaraumhverfið með því að miða við verðbólguspá, 5,2%, til að tryggja
    óbreytt raunvirði gjaldanna eða hvort það ætti að miða við
    verðbólgumarkmið Seðlabankans, 2,5%. Ég get alveg skilið þessi rök þó að
    til lengdar efist ég um skynsemi þess að gjöldin lækki að raunvirði á
    hverju ári í þau skipti sem verðbólga er hærri en verðbólgumarkmið, en
    verðbólga undanfarin 20 ár og raunar 30 ár líka hefur verið að meðaltali
    yfir 5% þótt verðbólgumarkmiðið hafi frá aldamótum verið 2,5%, þannig að
    það er ekki sjálfbært og ekki ábyrgt. Hins vegar getur út af
    kringumstæðunum núna, og ég hef alveg sagt það, komið til skoðunar að
    horfa á þetta í samtölum við aðila vinnumarkaðarins en þá skiptir auðvitað
    öllu máli hvort sveitarfélögin komi þar með, því það hefur á undanförnum
    dögum verið hótað gríðarlegum hækkunum á gjaldskrám, t.d. í Reykjavík, en
    þær voru auðvitað mjög miklar þar á gamla fólkið í sumar, 70%, mjög miklar
    á barnafólkið í Kópavogi síðustu tvö misseri og allt skiptir þetta máli
    fyrir fólk sem er að láta enda ná saman.</ns:mgr>

    <ns:mgr>En ábendingarnar hafa verið fjölmargar og miklu fleiri en ég kemst
    yfir í þessari ræðu. Ég hef hins vegar punktað hjá mér undir umræðunni og
    veit að aðrir hafa gert það líka. Við eigum von á því að senda frumvarpið
    út til umsagnar og að venju fá fjölda umsagna þar sem okkur verður án efa
    bent á á kjarnyrtri íslensku hvað megi betur fara í þessum fjárlögum sem
    er gríðarlegt styrkleikamerki. Hér eru traustatök en það er ekki alveg
    einfalt að binda um þau þannig að bíti ef við horfum bara til þess hvernig
    útgjöldin t.d. á þessu ári hafa verið að þróast. Ég nefni
    heilbrigðiskerfi, sjúkratryggingar, algerlega ófjármagnaða kjarasamninga
    sem efnt var til um það leyti sem þessi ríkisstjórn var að taka við og var
    ekki sest að völdum. Þannig að það verður í mörg horn að líta en ég kvíði
    því ekki, ég beinlínis hlakka til að taka í hornin á fjárlögunum inni í
    fjárlaganefnd, eiga þar vonandi góð samtöl, kalla eftir dýpri greiningum
    og gögnum og líka í raun leggja grunn að hinni stóru umræðu sem við tökum
    síðan í tengslum við fjármálaáætlun í vor: Hvernig samfélag erum við að
    skapa með þessu öllu saman? Við erum norrænt velferðarsamfélag. Hvernig
    skiptum við útgjöldunum til þess að við tryggjum það? Og hvernig deilum
    við byrðunum þannig að sanngjarnt sé og við viðhöldum og varðveitum
    breiðan stuðning við verkefnið lífsgæðaland, velferðarland og land sem
    horfir til framtíðar með áherslu á menntun, fólkið okkar og öflugt
    atvinnulíf?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>