<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-11T17:47:34" skst="IIsak" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 17:58:13 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T17:47:34">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Herra forseti. Nú þegar 1. umræðu um fjárlög næsta árs er að ljúka
    langar mig aðeins til að horfa á heildarmyndina. Markmið
    ríkisstjórnarinnar um jafnvægi í ríkisfjármálum er vissulega mikilvægt og
    við getum flestöll stutt það. Um það þarf ekkert að deila og ég sagði það
    sama hér í gær. Ríkissjóður getur ekki verið rekinn með viðvarandi halla,
    safnað skuldum og látið sífellt stærri hluta tekna sinna renna í vexti.
    Spurningin er þó frekar eftirfarandi: Er raunhæft að ná þessu markmiði
    strax á næsta ári? Er aðferðin sem verið er að beita til að ná þessum
    hallalausu fjárlögum rétt og eru forsendurnar sem markmiðin hvíla á nógu
    traustar?</ns:mgr>

    <ns:mgr>Byrjum aðeins á að fara yfir það sem liggur nú þegar fyrir. Árið
    2025 var fyrsta heila starfsár þessarar ríkisstjórnar. Fjárlög gerðu ráð
    fyrir 63 milljarða halla. Í desember, þegar þrjár vikur voru eftir af
    árinu, taldi ríkisstjórnin að hallinn yrði hins vegar einungis 35
    milljarðar. Niðurstaðan varð hins vegar 66 milljarða halli. Árið 2026,
    árið í ár, gerðu fjárlög fyrst ráð fyrir 15 milljarða halla sem var svo
    hækkaður í 28 milljarða og núna í byrjun september stefnir hallinn í 70
    milljarða. Frávikið er tæpir 40 milljarðar á innan við ári. Samanlagt eru
    þetta rúmlega 130 milljarða halli á tveimur árum og það getur vel verið að
    hallinn verði enn meiri í lok þess árs. Þetta eru þau tvö ár sem þessi
    ríkisstjórn, ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur, hefur borið ábyrgð á
    framkvæmd fjárlaga og bæði árin hefur niðurstaðan orðið í engu samræmi við
    það sem lagt var upp með. Ég nefni þessar staðreyndir vegna þess að þetta
    er grunnurinn sem næsta ár og næstu fjárlög byggjast á. Frumvarpið gerir
    ráð fyrir að ríkissjóður fari úr tæplega 70 milljarða halla í tæplega 5
    milljarða afgang á einu ári. Það er viðsnúningur upp á rúmlega 70
    milljarða.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Þá kemur að trúverðugleikanum því til að trúa því að við náum
    þessu markmiði, sem er vissulega mikilvægt, þá þarf maður að sjá hvað á að
    gera öðruvísi og hvernig. Þar liggur vandinn. Ríkisstjórnin hefur ekki
    sýnt okkur, a.m.k. ekki í umræðunni hér síðastliðna tvo daga, hvað hún
    ætlar að gera með öðrum hætti á næsta ári en hún hefur gert undanfarin tvö
    ár. Það eru margvíslegar óútskýrðar forsendur sem við þurfum einnig að
    huga að. Sjúkratryggingar fara um 12 milljarða fram úr í ár og sjúkrahúsin
    um 11. Í frumvarpinu segir að það þurfi að bregðast við en það segir
    hvergi hvernig eigi að bregðast við. Aðhaldið er að stórum hluta frestun
    framkvæmda sem frumvarpið viðurkennir sjálft að geti kallað á
    fjárveitingar síðar. Varasjóðurinn verður minni en sá sem dugði ekki í ár.
    Verkfærin eru þau sömu, vinnubrögðin eru þau sömu, samt á niðurstaðan að
    vera önnur.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Þá förum við að forsendunum. Frumvarpið byggir á vorspá
    Seðlabankans. Síðan hún var gefin út hefur bankinn lækkað hagvaxtarspá
    sína fyrir árið í ár. Verðbólguviðmið kjarasamninga stóðst ekki í ágúst og
    í frumvarpinu segir að þróun virðisaukaskatts bendi til að eftirspurn hafi
    kólnað meira en gert var ráð fyrir en uppfærðar forsendur koma í rauninni
    ekki fram fyrr en við 2. umræðu frumvarpsins. Það er e.t.v. ekki himinn og
    haf á milli vorspár Seðlabankans og síðustu spár frá því í ágúst en það er
    þó munur þar á og staðan er síst að batna. Þetta þýðir að afgangurinn, 4,7
    milljarðar af 1.700 milljarða veltu, er reiknaður út frá mynd sem
    ráðuneytið sjálft telur bjartsýna. Í svartsýnni sviðsmynd frumvarpsins
    hverfur afgangurinn og í staðinn kemur halli upp á 65 milljarða. Vissulega
    er það aðeins sviðsmynd en samt sviðsmynd sem gæti vel raungerst miðað við
    hvernig árið 2026 er að þróast og miðað við þær forsendur sem við höfum í
    dag eru þessar væntingar því miður byggðar á sandi. Ég segi þetta ekki hér
    af neinni ánægju. Ég vildi óska þess að þetta horfði öðruvísi við en það
    er mikilvægt að við sem sitjum hér á Alþingi, og ég tala nú ekki um sem
    erum í fjárlaganefnd, horfum á tölurnar eins og þær eru, ekki eins og við
    vildum óska þess að þær væru.</ns:mgr>

    <ns:mgr>En þá að þeim sem borga, fólkinu í landinu. Rúmlega 34 milljarðar
    af afgangnum eru sóttir með nýjum eða hærri sköttum og gjöldum.
    Krónutölugjöld hækka um 5,2%, meira en spáð verðbólga næsta árs.
    Kílómetragjaldið hækkar um tæp 16%. Þrepamörk tekjuskatts eru fryst,
    barnabætur standa í stað og rýrna, vaxtabætur falla niður og komugjöld í
    heilsugæslu hækka um 100%. Ég spurði í umræðunni í gær og vil spyrja aftur
    hvort áhrif þessara breytinga sem verið er að leggja fram til að ná inn
    auknum tekjum í ríkissjóð hafi verið metin hvað varðar áhrif á fjölskyldur
    í landinu, ekki hver liður fyrir sig heldur bara samanlögð áhrif. Hver eru
    samanlögð áhrif á barnafjölskyldu á landsbyggðinni með verðtryggt lán og
    tvo bíla sem hefur á sama tíma tekið á sig hærri vexti og hærra verðlag?
    Það hefur ekkert svar borist við því og ég óttast að svarið liggi ekki
    fyrir, að áhrifin hafi hreinlega ekki verið metin.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Það sama gildir um fyrirtækin. Fjárfesting atvinnuveganna dregst
    saman á næsta ári samkvæmt frumvarpinu sjálfu. Á sama tíma er bankaskattur
    hækkaður verulega. Álögur á ferðaþjónustu hækka, framlög til nýsköpunar
    eru lækkuð og endurgreiðsla vegna rannsókna skorin niður. Fyrirtæki sem
    hafa tekið á sig hærri vexti og hærri gjöld tvö ár í röð fá nú þriðja árið
    af sama tagi, þriðja árið í röð. Hér kemur spurningin sem mér finnst
    skipta mjög miklu máli því að þessi heimili og þessi fyrirtæki sem hafa nú
    ítrekað tekið á sig auknar álögur og skertan stuðning og þar af leiðandi
    vissulega lagt sitt af mörkum með þeim rökum að það þurfi til að ná
    jafnvægi: Hvað gerist ef markmiðið um hallalaus fjárlög næst ekki? Ef
    afgangurinn verður ekki að veruleika? Ef árið 2027 fer eins og árið 2025
    og 2026 stefnir í? Þá stendur ríkisstjórnin frammi fyrir sömu þremur
    kostum og alltaf: hærri sköttum, minni þjónustu eða meiri lánum og
    reikningurinn lendir aftur á sömu fjölskyldum og sömu fyrirtækjum sem
    þegar hafa borgað fyrir fyrirheit sem ekki gengu eftir. Þá vaknar spurning
    sem ég hef heldur ekki heyrt svarað í þessari umræðu: Hvað gerir
    ríkisstjórnin þegar og ef það kemur í ljós á árinu 2027 að markmið um
    afgang muni ekki standast? Þetta ætti að liggja fyrir í apríl samhliða
    framlagningu fjármálaáætlunar, a.m.k. ekki síðar. Verður gripið til
    markmiða um frekari uppsagnir, frekari frestun framkvæmda? Verða álögur
    hækkaðar á ný eða verður hallinn einfaldlega fjármagnaður með lánum og
    markmiðinu ýtt áfram um eitt ár? Hver er áætlunin ef þetta gengur ekki
    eftir, ef þetta klikkar? Hvar er sú sviðsmynd? Sviðsmyndagreining snýst
    ekki bara um að koma með einhverjar krónutölur ef allt fer á versta veg
    heldur að það liggi eitthvað fyrir um til hvaða aðgerða verði gripið ef
    áætlanir okkar ganga ekki eftir.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Það er eðlilegt að spyrja vegna þess að reynsla síðustu tveggja
    ára segir okkur að þessi staða mun því miður að öllum líkindum koma upp
    <ns:bjalla/> og þegar það er augljóst er ekki ábyrgt að bíða og sjá. Við
    eigum að vera reiðubúin og Alþingi á rétt á að vita fyrir fram hver
    viðbrögðin verða. <ns:bjalla/> Þetta er ástæðan fyrir því að ég spyr um
    tímasetninguna, aðferðirnar og forsendurnar, ekki vegna þess að markmiðið
    sé rangt heldur vegna þess að þegar markmiðið er byggt á veikum grunni og
    það bregst þá er kostnaðurinn ekki borinn af ráðuneytinu. Hann er borinn
    af heimilum landsins.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>