<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="fjmrh." frhr="0" id="r2026-09-11T17:58:21" skst="DMK" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 18:03:32 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T17:58:21">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Ég vil byrja á að taka undir orð hv. þm. Dags B. Eggertssonar um
    að þetta hafi á margan hátt verið góð umræða og óvenjuleg að því leyti að
    nokkur samstaða var um markmið fjárlaga, þ.e. hallaleysi, þó að deilt hafi
    verið hér um leiðir. Ég vil í þessum lokaorðum einungis brýna fyrir hv.
    þingmönnum og hv. fjárlaganefnd hvers vegna þetta markmið skiptir svona
    miklu máli. Sjálfbær rekstur ríkissjóðs skiptir máli vegna
    hagstjórnarinnar vegna þess að hann stuðlar að lægri verðbólgu og lægri
    vöxtum með því að draga úr þensluhvetjandi áhrifum ríkisins. En það er
    fleira sem skiptir máli. Besta trygging Íslands fyrir að geta tekist á við
    ófyrirséð áföll í framtíðinni er sterk fjárhagsstaða ríkissjóðs. Hún hefur
    veikst mikið og þessari þróun þarf að snúa við vegna þess að ef eitthvað
    er öruggt er það það að Ísland hefur ekki séð síðustu ágjöfina.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Fleira skiptir máli. Fjárlögin leggja grunninn að aga og
    trúverðugleika almennt í efnahagsstjórnuninni á Íslandi. Því miður hefur
    of oft brugðið við að það hafi ekki verið staðið undir slíkum aga og
    slíkum trúverðugleika sem gerir það að verkum að akkeri væntinga,
    sérstaklega verðbólguvæntinga, er óvanalega laust á Íslandi og lausar
    verðbólguvæntingar leiða iðulega til verðbólgu. Það er einnig þannig að
    trúverðugleiki efnahagsstefnunnar er grunnurinn að ytri stöðugleika. Öll
    nágrannalöndin hafa þurft að fást við svipaðar áskoranir og Ísland,
    áskoranir sem snúa að stöðugleika bæði inn á við og út á við. Þó að langt
    sé orðið um liðið frá því að þessi ríki tóku á sínum málum og náðu breiðri
    pólitískri sátt um aga og trúverðugleika efnahagsstefnunnar þá getum við
    dregið lærdóm af þeirri vegferð og í öllum tilfellum snerist hann um
    ábyrgan sjálfbæran rekstur ríkissjóðs sem akkeri undir trúverðugleika
    efnahagsstefnu stjórnvalda.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Mig langar í síðasta lagi að nefna punkt sem hv. þm. Guðlaugur Þór
    Þórðarson kom inn á, punkt sem sneri að því sem hann taldi vera ómaklega
    umfjöllun í þessum sal um Covid-ráðstafanirnar. Ég tek heils hugar undir
    með hv. þingmanni að það einkenndi þennan sal á þessum tíma og einnig
    undir jarðhræringunum á Reykjanesi að hér ríkti mikil samstaða um
    mikilvægi viðbragða. Öllum hefði samt átt að vera ljóst að þessir peningar
    voru teknir að láni og að einhvern tímann þyrfti að koma að því að þeir
    yrðu greiddir til baka. Það er makalaust að hlusta á umræðuna í þessum sal
    eftir að hafa upplifað þá samstöðu sem var hér á Covid-tímanum og einnig
    þegar jarðhræringarnar voru á Reykjanesi þar sem allir voru sammála um að
    það þyrfti að bregðast við en nú þegar kemur að skuldadögum virðist enginn
    kannast við þann reikning. Þann reikning verður að greiða. Hjá því verður
    ekki komist og það veldur mér þess vegna nokkurri furðu þegar hv.
    þingmenn, svo sem eins og hv. þm. Ingibjörg Isaksen stendur hér upp og
    furðar sig á því að reikningurinn lendi hjá þjóðinni. Hvar annars staðar
    ætti hann að lenda? Hvernig í ósköpunum fjármagnar ríkissjóður sig
    öðruvísi en með skattpeningum? Ef við ætlum að geta tekist hér á við áföll
    þurfum við líka að standa saman um það að byggja upp áfallaþolið eftir að
    þau eru um garð gengin og það gerum við ekki öðruvísi en þessi fjárlög
    leggja til. Við gerum það ekki öðruvísi en með aðhaldi, <ns:bjalla/> hvort
    sem það er á kostnaðar- eða tekjuhlið.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>